Ekki að fara á límingunum þó krónan sé að veikjast Stefán Ó. Jónsson skrifar 10. mars 2020 09:15 Það er ekki á sjá á þessum krónum að þær séu veikari en oft áður. Vísir/vilhelm
Gengi íslensku krónunnar hefur veikst nokkuð að undanförnu. Er nú svo komið að gengisvísitala krónunnar hefur ekki verið hærri síðan árið 2016. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, segist þó ekki vera að fara á límingunum út af þessu - ekki frekari en Seðlabankinn, sem Jón Bjarki telur að sé ekkert sérstaklega mótfallinn veikari krónu. Hann segir það mat sérfræðinga á gjaldeyrismarkaði að flæðið sé nokkuð einhliða þessa dagana. „Þeir sem kaupa gjaldeyri eru svolítið einráðir á markaðnum, það er eins og þeir sem eru að selja bíði frekar átekta.“ Það sé hins vegar ekkert nýtt, markaðurinn hérlendis er lítill og það þurfi því ekki háar upphæðir til að hafa áhrif á gengi krónunnar til skamms tíma. Þrátt fyrir allt segist Jón Bjarki skilja það sem svo að veltan hafi ekki verði sérstaklega mikil í gær, þegar rautt var á öllum tölum í Kauphöllinni. „Það er ekki eins og það séu einhverjir stórir straumar af gjaldeyri út úr landinu,“ segir Jón Bjarki. Þess í stað hafi straumurinn verið jafn og þéttur síðustu vikur.Ótrúlega lítil sveifla í fyrra Miðað við allt sem á gekk í fyrra, eins og fall WOW air og loðnubrestur, segir Jón Bjarki það hálf ótrúlegt hvað gengi krónunnar haggaðist lítið á síðasta ári. „Hún sveiflaðist á þröngu bili allt síðasta ár. Það er ekki fyrr en núna á síðustu vikum sem þessi ótíðindi eru farin að endurspeglast í genginu.“ Aðspurður um hvort Seðlabankinn geti gripið í taumana til að varna frekari gengislækkun segir Jón Bjarki svo vera. Forsvarsmenn Seðlabankans hafi þannig sagst ætla að skerast í leikinn ef fjármagnsflæðið verður einhliða. Þó svo að bankinn hafi látið að sér kveða í þessum efnum hafi hann ekki verið stórtækur á markaði nema þegar sveiflurnar hafa verið miklar. „Hins vegar held ég að Seðlabankinn sé ekkert afhuga því að sjá eitthvað veikari krónu. Einhverjir meðlimir peningastefnunefndar hafa sagt að það þyrfti heldur lægra gengi til þess að koma hagkerfinu á réttan kjöl aftur, eftir þá skelli sem við höfum fengið á okkur undanfarið,“ segir Jón Bjarki.Ferðamenn kættust þegar krónan veiktist síðla árs 2018.Vísir/vilhelmVeikari króna, kátari ferðamenn Lægra gengi myndi þannig koma ferðaþjónustunni að góðum notum enda atvinnugrein sem er næm fyrir gengisbreytingum. Lægri króna skili sér í hamingjusamari ferðamönnum. Gengisvísitala krónunnar, sem er um 189,8 í dag, sé þannig líklega „í grennd“ við það sem forsvarsmenn Seðlabankans vilja hafa vísitöluna, að mati Jóns Bjarka. Þó svo að lægra gengi myndi þýða hærra verð á innfluttum vörum segist Jón Bjarki bjartsýnn á að það myndi ekki leiða til óhóflegs verðbólguskots. Þegar gengi krónunnar féll um 10 prósent haustið 2018 hafi verðbólgan vissulega aukist en hjaðnað fljótt aftur. „Það gerir mann svolítið bjartsýnan um að þrátt fyrir að það verði einhver veiking núna að það þýði ekki að verðbólgan sé að fara út og suður og við séum að fara aftur í gömlu tímana. Við virðumst hafa betri stjórn á henni,“ segir Jón Bjarki og bætir við að lítil verðbólga erlendis spili þar að auki inn í myndina. Jafnframt sé skörp verðlækkun á olíu til þess fallin að draga úr framleiðslukostnaði og minnka verðbólguþrýsting. Jón Bjarki minnir þó að uppistaðan í olíuverði hérlendis séu opinber gjöld og því þurfi myndarlegar sveiflur til að hafa afgerandi áhrif á verðið við bensíndæluna.
Efnahagsmál Ferðamennska á Íslandi Íslenska krónan Tengdar fréttir Dow Jones-vísitalan hrundi um 7,8 prósentustig Dow Jones vísitalan hrundi um 7,8% á mörkuðum í dag en um er að ræða mestu lækkun hennar frá efnahagshruninu árið 2008 9. mars 2020 20:35 Mest lesið Paramount sigrar Netflix í baráttunni um Warner Bros. Viðskipti erlent Gugga fer í fyrirtækjarekstur Viðskipti innlent Slangur, menning og jafnvel húmor getur skolast illa á milli kynslóða Atvinnulíf Munaðarlausi apinn í Japan farinn að hafa áhrif á Íslandi Viðskipti innlent „Það er einhvers konar pissa í skóinn sinn-hagfræði“ Viðskipti innlent Bjarni Guðjóns hættir hjá VÍS Viðskipti innlent Kvikutoppar fóru fýluferð í Landsrétt og borga tugi milljóna Viðskipti innlent Tilboð Icelandair það eina og langt yfir áætlun Viðskipti innlent Bíllinn sem rúllaði upp vetrardrægniprófi NAF Samstarf Bein útsending: Lokakeppni Gulleggsins 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Munaðarlausi apinn í Japan farinn að hafa áhrif á Íslandi Gugga fer í fyrirtækjarekstur „Það er einhvers konar pissa í skóinn sinn-hagfræði“ Sýn skilaði hagnaði á fjórða ársfjórðungi Kvikutoppar fóru fýluferð í Landsrétt og borga tugi milljóna Bein útsending: Lokakeppni Gulleggsins 2026 Tekist á um kaupfox og hefð vegna 80 ára jeppa Mikið í húfi ef ekki dregur úr verðbólgu og vaxtalækkun ekki í sjónmáli Tilboð Icelandair það eina og langt yfir áætlun Lilja nýr markaðs- og upplifunarstjóri hjá Högum Verðbólga stendur í stað þvert á spár Bjarni Guðjóns hættir hjá VÍS Festa kaup á hugbúnaðarfyrirtækinu Evolv Selja húsnæði Vélfags á Ólafsfirði Óttar og Jón Arnór látnir róa vegna tengsla við viðskiptavin Velta heilsulinda jókst töluvert „Ægilega hamingjusamur“ með milljarðana frá Kerecis Sögðu upp blaðamönnum Grapevine og reksturinn í járnum Hvar liggur jafnvægið í eyðslu og sparnaði? Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Engin viðvarandi markaðssetning frá 2023 Bestu íslensku vörumerkin 2025 heiðruð í Hörpu Allt á uppleið á Grundartanga Nova kaupir Ofar Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Hagnaður af grunnrekstri nam 36 milljörðum Sölvi genginn til liðs við KAPP Líklegra en áður að nýjar íbúðir seljist undir ásettu verði Sjá meira
Dow Jones-vísitalan hrundi um 7,8 prósentustig Dow Jones vísitalan hrundi um 7,8% á mörkuðum í dag en um er að ræða mestu lækkun hennar frá efnahagshruninu árið 2008 9. mars 2020 20:35