Gul viðvörun í gildi víða næstu daga og fjórar lægðir í kortunum Eiður Þór Árnason skrifar 12. janúar 2020 07:32 Lægðirnar halda áfram að streyma yfir landið. Veðurstofan
Gul viðvörun vegna veðurs verður í gildi víða á landinu næstu daga. Í dag nær hún til Stranda og Norðurlands vestra, Vestfjarða og Norðurlands eystra. Fyrir morgundaginn hefur Veðurstofan gefið út gula viðvörun fyrir Suðurland, Faxaflóa, Breiðafjörð, Vestfirði, Standir og Norðurland vestra, Suðausturland og Miðhálendið. Talsverður hringlandaháttur er á lægðunum sem snúast um sjálfar sig í kringum landið og er hægt að greina fjórar lægðir á veðurtunglamyndum, er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings. Hvöss norðaustanátt verður á norðvestur- og vestanverðu landinu undir hádegi í dag og allhvöss vestlæg átt norðaustan- og austanlands, annars yfirleitt hægari vindur. Víða verður snjókoma eða él, en þurrt að kalla austantil. Lægir víða í nótt. Frost yfirleitt 0 til 8 stig. Segir jafnframt í hugleiðingum veðurfræðings að æskilegt sé að ferðalangar og útivistarfólk fylgist vel með veðri því það geti fylgt allmikil úrkoma þessum lægðum þótt ekki séu þær miklar um sig og um tíma valdið mjög takmörkuðu skyggni og jafnvel skafrenningi. Veðrið eftir helgi er sagt vera án stórra breytinga, norðaustan hvassviðri eða stormur og ofankoma, einkum fyrir norðan og austan.
Veður Mest lesið Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Innlent Skiptast á eldflaugum í massavís Erlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Erlent Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Erlent Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Innlent Jörðin fær tímabundið annað tungl Erlent Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Innlent Fleiri fréttir Bjarni fundaði með Guterres Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Kom vini sínum til bjargar á fótboltaæfingu og 34. klukkustund Bakgarðshlaups Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Verður Þórsmörk þjóðgarður? Vill burt með rándýr, úrelt og óþarfa stimpilgjöld Vonar að sveitarfélögin leysi úr NPA-vandanum Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Fjármögnun NPA-samninga og Bakgarðshlaupið í beinni Samgöngusáttmálinn, Yazan og loftlagsmál á Sprengisandi Slegist með vopnum við skemmtistað Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Lögreglumenn í veikindaleyfi vegna þungra mála Með banvænan sjúkdóm í stöðugri baráttu við Kópavogsbæ Mikill reykur eftir að gleymdist að slökkva á kerti Bið eftir NPA-þjónustu og eftirspurn eftir sæðisgjöfum Arnar Þór á leið í nýjan flokk Anton Sveinn McKee til liðs við Miðflokkinn „Spurðu svo fyrirtækið þitt af hverju það leggur fé í heimsendakölt“ Ekkert sem bendir til þess að sakborningum fjölgi Lífræni dagurinn er í dag Bein útsending: Heilabilun rædd á Alzheimerdegi Ekkert bendi til að sakborningum muni fjölga Telur fleiri falla á nýju bílprófi Maður margra storma íhugar stöðu sína Byssan reyndist leikfang Mamma bara María þegar mæðgurnar eru saman á vakt Hvers vegna að fella ísbirni? Sjá meira