Nú er komið í ljós hvaða lög taka þátt í Söngvakeppninni 2020. 10 lög keppa í ár og keppnin hefst þegar fyrri undanúrslitin fara fram í Háskólabíói þann 8. febrúar en þá munu fyrri fimm lögin keppa. Þetta kemur fram í tilkynningu frá RÚV.
Seinni undanúrslitin fara fram 15. febrúar en þá verða seinni fimm lögin flutt. Tvö lög úr hvorri undankeppni komast áfram í úrslitin í gegnum símakosningu almennings. Það verða því fjögur lög sem keppa til úrslita í Laugardalshöll 29. febrúar þegar framlag Íslands til Eurovision söngvakeppninnar verður valið.
Framkvæmdastjórn keppninnar hefur þó sem fyrr möguleika á að bæta við einu lagi í úrslitin, svokölluðu wildcard eða „Eitt lag enn” eins og það er kallað í keppninni.
Sömu kynnar
Kynnar í keppninni verða þau Björg Magnúsdóttir, Benedikt Valsson og Fannar Sveinsson.
Boðið verður upp á skemmtiatriði á öllum viðburðunum og von er á erlendu Eurovision-atriði í úrslitinum í Höllinni. Tilkynnt verður um það á næstu dögum.
Almenningi gefst sem fyrr kostur á að vera á staðnum en miðasala hefst fimmtudaginn 23. janúar á tix.is. Undanfarin ár hefur skapast mikil fjölskyldustemmning á viðburðunum sjálfum en í ár munu þeir Gunni og Felix hita áhorfendur í sal upp. Undanúrslitin og úrslitin verða í beinni útsendingu á RÚV.
Margir þekktir flytjendur taka þátt í ár í bland við upprennandi söngstjörnur sem eru að stíga sín fyrstu skref í tónlistarbransanum.
Í reglum keppninnar segir að í undanúrslitum verði lagið að vera flutt á íslensku en í úrslitunum megi höfundur ráða hvort það verður á íslensku eða á öðru tungumáli. Í keppninni í ár hafa 4 höfundar ákveðið að hafa lögin sín áfram á íslensku komist þau í úrslit, en hinir 6 höfundarnir munu láta flytja sín lög á ensku. Hér að neðan má sjá enskan titil lagsins aftan við þann íslenska þegar svo á við
Taka með sér atkvæðin
Fyrirkomulagið á úrslitakvöldinu verður eins og á síðasta ári. Símakosningin verður á sínum stað og vegur hún 50 prósent á móti alþjóðlegri dómnefnd. Komist lögin í úrslitaeinvígið taka þau með sér þau atkvæði sem þau fengu áður í símakosningunni.
Hér að neðan má sjá hvaða keppendur taka þátt í Söngvakeppninni 2020.
Fyrri undanúrslit í Háskólabíói - 8. febrúar
ÆvintýriFlytjandi: Kid Isak
Lag: Þormóður Eiríksson, Kristinn Óli Haraldsson og Jóhannes Damian Patreksson
Texti: Þormóður Eiríksson og Kristinn Óli Haraldsson
Flytjandi: Brynja Mary
Lag: Brynja Mary Sverrisdóttir og Lasse Qvist
Texti: Kristján Hreinsson
Enskur texti: Brynja Mary Sverrisdóttir
Flytjandi: DIMMA
Lag: DIMMA
Texti: Ingó Geirdal
Flytjandi: Elísabet
Lag: Elísabet Ormslev og Zoe Ruth Erwin
Texti: Daði Freyr
Enskur texti: Zoe Ruth Erwin
Flytjendur: Ísold og Helga
Lag: Birgir Steinn Stefánsson og Ragnar Már Jónsson
Texti: Stefán Hilmarsson
Enskur texti: Birgir Steinn Stefánsson, Ragnar Már Jónsson og Stefán Hilmarsson
Gagnamagnið / Think about things
Flytjendur: Daði og Gagnamagnið
Lag, íslenskur og enskur texti: Daði Freyr
Flytjandi: Hildur Vala
Lag: Hildur Vala og Jón Ólafsson
Texti: Bragi Valdimar Skúlason
Flytjandi: Iva
Lag og íslenskur texti: Íva Marín Adrichem og Richard Cameron
Enskur Texti: Richard Cameron
Flytjandi: Matti Matt
Lag: Birgir Steinn Stefánsson og Ragnar Már Jónsson
Texti: Matthías Matthíasson
Flytjandi: Nína
Lag: Þórhallur Halldórsson og Sanna Martinez
Texti: Þórhallur Halldórsson og Einar Bárðarson
Enskur texti: Þórhallur Halldórsson, Christoph Baer, Donal Ryan og Sanna Martinez