Viðskipti innlent

Lækka verð á íbúðum um 700 þúsund krónur

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Tölvumynd af íbúðunum og hverfinu.
Tölvumynd af íbúðunum og hverfinu. MYND/YRKI ARKITEKTAR

Vistfélagið Þorpið úthlutaði í dag fyrstu íbúðum sínum í Gufunesi. Verð íbúðanna lækkaði um 700 þúsund krónur að meðaltali, miðað við það sem áður var auglýst fyrir umsækjendum um íbúðirnar. Þrír umsækjendur voru um hverja íbúð.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þorpinu vistfélagi. Þar segir að félagið hafi í dag úthlutað 43 íbúðum félagsins í Gufunesi til ungs fólks og fyrstu kaupenda. Alls hafi 132 einstaklingar sótt um íbúð í útdeilingunni, en 82 hafi náð greiðslumati til að kaupa. Þannig voru þrír umsækjendur um hverja íbúð, en tveir með gilt greiðslumat um hverja íbúð. Dregið var á milli umsækjenda með gilt greiðslumat í ráðhúsi Reykjavíkur af fulltrúa sýslumanns í dag.

Vikufrestur til að staðfesta kaup

„Umsækjendur fá póst í dag um niðurstöðu útdráttar, en einnig þau skilaboð að kaupverð íbúða þeirra hefði lækkað um 470 til 900 þúsund vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar um endurgreiðslu á virðisaukaskatti sem hefur lækkað byggingarkostnað umtalsvert. Þorpið hefur ákveðið að láta kaupendur njóta þess og lækkað áður auglýst verð þrátt fyrir mikla eftirspurn. Meðaltalslækkun á kaupverði íbúða sem tilkynnt var kaupendum í dag eftir útdrátt, eru rúmar 700 þúsund frá því verði sem kynnt var umsækjendum fyrir útdrátt,“ segir í tilkynningunni.

Þeir kaupendur sem dregnir voru út fá nú vikufrest til þess að staðfesta kaup sín. Í kjölfarið verða gerðir kaupsamningar og kaupendur greiða fimm prósent af kaupverði sem innborgun í íbúðirnar.

Minnst ásókn í fjögurra herbergja íbúðir

Þá segir í tilkynningunni að umframeftirspurn hafi verið eftir ölum íbúðargerðum. nema fjögurra herbergja íbúðum. Þar séu enn óseldar fimm af tólf íbúðum í fyrsta áfanga félagsins. 

Mest hafi ásóknin verið í tveggja herbergja íbúðir, en 25 manns sóttu um 10 slíkar íbúðir. Fjórtán manns sóttu síðan um fjórar stúdíóíbúðir.

Hér að neðan má sjá verð íbúða Þorpsins, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá félaginu:

Stúdíóíbúðir eru á 19 milljónir króna, tveggja herbergja íbúðir á 27,1 mkr., þriggja herbergja íbúðir á 31,6 mkr og fjögurra herberga íbúðir á 36,5 mkr.

Íbúðum fylgir mikil sameign s.s. sameiginlegt þvottahús, veislusalur/kaffihús og pósthús/búr. Einnig fylgja íbúðum grænmetisgarðar og deilibílar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×