Úlfarnir sóttu dýrmæt þrjú stig í Meistaradeildarbaráttunni 20. júní 2020 18:20 Leikmenn Wolves fagna marki vísir/getty West Ham United tók á móti Wolverhampton Wanderers á Ólympíuleikvanginum í London í 30. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. West Ham er í bullandi fallbaráttu en Úlfarnir eru að berjast um Meistaradeildarsæti. Úlfarnir voru mun betri aðilinn í leiknum, en fyrsta markið kom ekki fyrr en á 73. mínútu, þegar markaóði Mexíkaninn Raúl Jimenez kom Wolves yfir. Ungi Portúgalinn Pedro Neto gulltryggði svo stigin þrjú fyrir Úlfanna á 84. mínútu, lokatölur 2-0. Með sigrinum lyftu Úlfarnir sér upp í 6. sæti, tveimur stigum frá Chelsea í 4. sætinu, á meðan West Ham sitja í 17. sæti og aðeins einu marki frá fallsæti. Enski boltinn
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti
Tapsárir Danir lentu í skærum við lögreglu: Piparúða beitt, ferðaklósetti velt og fimm milljón króna tjón Fótbolti
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti
Tapsárir Danir lentu í skærum við lögreglu: Piparúða beitt, ferðaklósetti velt og fimm milljón króna tjón Fótbolti