Skoðun

Bubbi, sagan og fyrrverandi

Rannveig Borg skrifar

Þetta með Bubba og sígarettuna er einstaklega táknrænt í ljósi sögunnar. Stundum þarf talsverða fjarlægð frá aðstæðum til að sjá þær í réttu ljósi.

Við erum búin að setja sígarettuna á sinn stað. Þó var ekki bannað að reykja á veitinga- og skemmtistöðum á Íslandi fyrr en 2007. Það er því ekki ýkja langt síðan það þótti sjálfsagt og jafnvel töff að reykja með tilheyrandi reykingalykt í partýjum, á skemmtistöðum, á skrifstofum, í bílum og inni á heimilum. Ég var líka Bubbi um tíma en er löngu hætt og sé eftir að hafa verið hann.

Þróun reykinga sést best þegar bornar eru saman kvikmyndir síðustu áratuga. Hvað breyttist? Vöknuðum við allt í einu og áttuðum okkur á að það væri ekki lengur svalt að reykja? Að það væri vond lykt af sígarettum, þær væru ávanabindandi, krabbameinsvaldandi og almennt heilsuspillandi?

Til að við almenningur tæki við sér þurfti raunar að setja lög til að minnka framboð, eftirspurn og aðgengi að svæðum til að reykja á. Banna sígarettuauglýsingar, reykingar á vinnustöðum og skemmtistöðum og hækka skatta á tóbaki. Einnig setja áberandi merkingar um skaðsemi reykinga á pakkningar. Þurfti virkilega að þvinga okkur til að hætta að reykja?

Ég ákvað fyrir nokkru að taka fjarlægð frá fyrrverandi þótt flestir segðu að hann væri æði - nema kannski þeir sem höfðu játað sig sigraða fyrir Guði og mönnum - . Ég áttaði mig á að hann gerði mér ekkert gott. Þegar ég var komin með ákveðna fjarlægð og sá hann í betra ljósi ákvað ég að lesa mér til og gekk svo langt að setjast á (há)skólabekk til að fræðast til um hann og hans líka. Ekki gat ég lesið um innihaldið á umbúðunum – þar stendur bara einhver prósentutala. Staðreyndirnar tala sínu máli. Hann er ávanabindandi, heilsuspillandi, krabbameinsvaldandi og dregur að meðaltali 3 milljónir manna á ári til dauða – þar af 12.6% af völdum krabbameina árið 2016. Samkvæmt fjölda rannsókna er hann eitt hættulegasta eiturlyfið. Nýjustu rannsóknir hrekja það sem við höfðum áður talið – hann er líka hættulegur í hófi. Á-i. En hann er svalur. Hrikalega svalur. Ég fylgi háttvirtum dómsmálaráðherra á Instagram sem sýnir sig stolt með honum í sparifötunum. Landlæknir talar um hann spariklæddan og freyðandi sem uppáhald. Lækna-Tómas fagnaði með honum nýlega á Facebook. Það getur vel verið að ég verði í einhverjum samskiptum við hann aftur seinna – sérstaklega við hátíðleg tilefni. Ég verð jú að falla í hópinn og halda kúlinu. Aftur á móti spyr ég mig. Sá sem á mynd af sér árið 2050 með drykk í hendi verður hann kannski Bubbi?

Heimildir:

1. https://apps.who.int/iris/bitstream/handle/10665/274603/9789241565639-eng.pdf?ua=1

2. https://www.globalcommissionondrugs.org/reports/classification-psychoactive-substances

3. http://www.euro.who.int/en/health-topics/disease-prevention/alcohol-use/news/news/2018/09/there-is-no-safe-level-of-alcohol,-new-study-confirms


Tengdar fréttir

Hæpin auglýsing

Sígarettumyndin af Bubba í auglýsingu Borgarleikhússins á söngleiknum Níu líf hefur fengið vægast sagt mikla athygli - en fyrirmyndin er gömul ljósmynd úr tímaritinu Samúel.




Skoðun

Sjá meira


×