Í fyrsta sinn sem Noregur vinnur ekki til verðlauna eftir að hafa komist í undanúrslit undir stjórn Þóris Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. desember 2019 10:12 Þórir hefur stýrt norska landsliðinu síðan 2009. vísir/getty
Norska kvennalandsliðið í handbolta, sem Þórir Hergeirsson stýrir, tapaði fyrir Rússlandi, 28-33, í leiknum um bronsið á HM í Japan. Þetta er í fyrsta sinn sem Noregur vinnur ekki til verðlauna eftir að hafa komist í undanúrslit á stórmóti undir stjórn Þóris. Hann hefur stýrt Noregi á 13 stórmótum og á þeim hefur liðið unnið til tíu verðlauna; sex gull, tvö silfur og tvö brons. Norska liðið byrjaði betur í bronsleiknum í dag en um miðjan fyrri hálfleik náði það rússneska yfirhöndinni. Rússar breyttu stöðunni úr 9-8 í 9-13 og náðu góðu forskoti sem þær létu ekki af hendi. Staðan í hálfleik var 15-18, Rússlandi í vil. Í seinni hálfleik náði Noregur aldrei að minnka muninn í minna en tvö mörk og Rússland vann nokkuð öruggan sigur, 28-33. Stine Oftedal og Emilie Arntzen skoruðu sjö mörk hvor fyrir norska liðið. Holland og Spánn mætast í úrslitaleik HM klukkan 11:30. Hvorugt liðið hefur áður orðið heimsmeistari.Árangur Noregs á stórmótum undir stjórn ÞórisHM: 2009 - brons 2011 - gull 2013 - 5. sæti 2015 - gull 2017 - silfur 2019 - 4. sætiEM: 2010 - gull 2012 - silfur 2014 - gull 2016 - gull 2018 - 5. sætiÓL: 2012 - gull 2016 - brons
Handbolti Íslendingar erlendis Noregur Mest lesið Breiðablik 3-2 Víkingur | Breiðablik Íslandsmeistari 2025 Íslenski boltinn Stólarnir fastir í München Körfubolti Íslensk hetja sendi Bergen upp í sjöunda himinn: Ein bestu kaup félagsins Fótbolti Sjáðu mark Hákonar og vítavörslurnar þrjár Fótbolti „Heimskulegt og asnalegt hjá mér“ Golf Sláandi xG tölfræði hjá Manchester United Enski boltinn Semenya hættir baráttu sinni Sport Bjóða upp á Frank Booker-árskort Körfubolti Grindavík - Njarðvík | Grindvíkingar snúa aftur á sinn heimavöll Körfubolti Afar ólík viðbrögð hjá Hlyni Bærings og Benna Gumm eftir byrjun þáttarins Körfubolti Fleiri fréttir „Það var smá stress og drama“ Afturelding áfram með fullt hús stiga Markaflóð á Akureyri Viktor Gísli og félagar í Barcelona heimsmeistarar félagsliða Tíu íslensk mörk þegar Magdeburg tók bronsið Valur vann stigalausu Stjörnuna Sandra með stórleik í sigri gegn Selfossi Stórleikur Hauks dugði ekki til sigurs Elín Klara markahæst hjá toppliðinu Íslendingaliðið í undanúrslit Tilfinningaþrungin stund eftir hörmungar síðustu ára Haukur með flestar stoðsendingar í Þýskalandi Íslendingarnir skutu Ringsted áfram Magdeburg fataðist flugið og Bjarki Már í úrslit Hroðaleg hnémeiðsli Janusar Daða Tryggðu sér sigurinn með því að skora síðustu fjögur mörkin Rut barnshafandi Haukur hafði betur í Íslendingaslagnum Eins marks sigur Valskvenna í Evrópudeildinni ÍBV með þægilegan sex marka sigur á Þór Sex marka tap í fyrsta Evrópuleik Selfyssinga Dramatískt jafntefli á Ásvöllum KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Stjarnan sneri leiknum og lagði FH „Þetta var bara draumi líkast“ „Frábært að sjá Darra spila handbolta aftur“ „Munurinn á liðunum var einfaldlega markvarslan“ Uppgjörið: Fram - Haukar 27-32 | Haukar sigldu sigrinum í höfn í Úlfarsárdal Flautumark í Breiðholti Ómar Ingi markahæstur í sigri Magdeburgar Sjá meira