Vilja minnka fyrirtækjalánasafnið um 20 prósent Hörður Ægisson skrifar 13. nóvember 2019 08:00 Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka.
Arion banki stefnir að því að minnka lánasafn bankans til fyrirtækja um tuttugu prósent fyrir árslok 2020 en í lok þriðja ársfjórðungs nam bókfært virði fyrirtækjalána bankans um 404 milljörðum króna. Þetta var á meðal þess sem kom fram í máli stjórnenda Arion banka á markaðsdegi bankans í London í gær þar sem þeir kynntu helstu áherslur í stefnu og starfsemi hans fyrir fjárfestum og greinendum. Útlánasafn Arion til fyrirtækja hefur dregist saman um tæplega sjö prósent á fyrstu þremur fjórðungum ársins sem hefur þýtt að áhættuvegnar eignir bankans hafa að sama skapi lækkað um 48 milljarða. Fram kom á fundinum að arðsemi af fyrirtækjalánum bankans, sem er núna að meðaltali um þrjú prósent, sé ekki ásættanleg og að stefnt sé að því að hún verði yfir tíu prósent. Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion, hefur sagt að viðskiptamódel bankans muni byggja í meiri mæli á milliliðahlutverki þar sem efnahagsreikningurinn verði notaður með sértækari hætti en áður samtímis því að bankinn veiti þjónustu sem feli í sér minni eiginfjárbindingu.
Birtist í Fréttablaðinu Íslenskir bankar Mest lesið Einföld leið til að nýta hugmyndavinnu oftar Atvinnulíf Að kúpla okkur frá vinnu um jólin Atvinnulíf Grýlan sem segir vekjaranum að grjóthalda kjafti Atvinnulíf Sektuð fyrir að segjast vera best Neytendur Gervigreindin sögð „bjargvættur“ jarðgassiðnaðarins Viðskipti erlent Kilroy hafi veitt ferðamönnum rangar upplýsingar Neytendur Bölvað basl á Bond Viðskipti erlent „Langstærsta“ vikan í sögu Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Innkalla sviðasultu vegna gruns um listeríu Neytendur Halda áfram bitcoin-braski þrátt fyrir samkomulag við AGS Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Langstærsta“ vikan í sögu Ölgerðarinnar Nefna fimm veitingastaði að baki „gervikjarasamningi“ Raforka til gagnavera snarminnkað Þekktir netþrjótar réðust á kerfi Wise Discover hefur flug milli München og Íslands Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Hluthafarnir samþykkja samruna Marels við JBT Sekta þau sem ekki greiða rétt fargjald um fimmtán þúsund krónur Elma Sif til Stika Solutions Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Standa vörð um bílastæði viðskiptavina Kringlunnar Vonar að allir pakkar berist til þeirra fyrir jól Kortleggja tómar íbúðir í samstarfi við sveitarfélög Jóna Björk tekur við Garðheimum Segja son og tengdadóttur Reynis ekki koma nálægt Mannlífskaupum EastJet flýgur til Basel og Lyon Margrét áfram rektor á Bifröst Ingibjörg Þórdís til Elko Fimm mætt í Kauphöllina RÚV sker sér stærri sneið af auglýsingakökunni Ársverðbólga óbreytt á milli mánaða Tómar íbúðir á landinu nú um 10 þúsund Keppinautar eigi ekki að opna bækur sínar hver gagnvart öðrum Segir kaupverðið á Mannlífi ekki hátt Hætta í stjórn vegna yfirvofandi kaupa á Mannlífi Heimkaup undir hatt Samkaupa Leggja nýjan jarðstreng til Súðavíkur Heimildin að ganga frá kaupum á Mannlífi Lykilstjórnendur fá skell vegna tugmilljóna hagnaðar Segir eðlilegar skýringar á hæsta raforkuverðinu Sjá meira