„Við erum, eins og öll heilbigðiskerfi, alltaf að ákveða hvernig við eigum að forgangsraða fé,“ segir Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra og bætir við að markmiðið sé alltaf að auka lífsgæði.
„Þannig að við erum að horfa á að fjármunir séu settir í að við séum að skapa hamingjusamari þjóð.“

Þurfti að fara af þingi til að forgangsraða
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri meðferðarsviðs Landspítalans, þekkir vel ákvarðanir um forgangsröðun. Hún þurfti meira að segja að fara af þinginu í morgun vegna álags á bráðamóttöku, alvarleg umferðarslys urðu, til að mynda á Suðurlandsvegi þar sem fjórir bílar rákust saman. Beina þurfti fólki á heilsugæslu vegna anna á bráðamóttöku.Guðlaug Rakel segir að með virkri forgangsvinnu takist að breyta hugsun fólks.
„Þetta er lært atferli, hvert maður á að fara. Ég held að flestum sé orðið ljóst að fyrsti viðkomustaður sé heilsugæslan nema um bráð veikindi sé að ræða,“ segir hún.
Ekki var komist að niðurstöðu í dag enda segir ráðherra markmiðið vera að skapa samræður. Þær eru svo efniviður í þingsályktun ráðherra, um siðferðileg gildi og forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu, sem lögð verður fyrir Alþingi á vormisseri.