Tveggja ára fangelsi fyrir fjárdrátt í opinberu starfi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. október 2019 15:27 Dómur var kveðinn upp í Landsrétti í dag. Vísir/Vilhelm
Landsréttur hefur staðfest tveggja ára fangelsisdóm yfir Guðmundi Jónssyni fyrir fjárdrátt í opinberu starfi og peningaþvætti. Sem skipaður skiptastjóri dánarbús dró hann sér 53 milljónir úr dánarbúi á þriggja ára tímabili. Brotin áttu sér stað á tímabilinu 7. febrúar 2013 til 7. júní 2016 en fjármunina notaði hann í margvíslegum tilgangi í eigin þágu og í rekstur lögmannstöfu hans. Meðal þess sem hann nýti fjármunina í var greiðslur trygginga, símareikninga, húsaleigu og stöðvunarbrotagjalds. Guðmundur játaði skýlaust brot sín við rannsókn málsins og fyrir dómi og sagðist hann hafa glímt við áfengis- og fíkniefnavanda sem hann hafi nú leitað sér aðstoðar vegna. Þá hafi hann einnig látið af lögmannstörfum.Í dómi Héraðsdóms Suðurlands frá því í fyrrasumar sagði að ekki verði framhjá því litið að Guðmundur hafi dregið sér mikla fjármuni úr dánarbúi sem honum var treyst fyrir sem lögmanni og olli þannig erfingjum búsins verulegu fjártjóni. Því þótti ekki fært að skilorðsbinda refsingu hans og var hann dæmdur í tveggja ára fangelsi, auk þess sem hann þarf að greiða dánarbúinu fjármunina sem hann dró sér.Landsréttur tók undir rökstuðninginn úr héraði. Er einnig komið inn á að Guðmundur hafi haldið brotum sínum áfram eftir að honum var birtur úrskurður úr héraði þess efnis að honum hefði verið vikið úr starfi sem skiptastjóri. Því hafi verið um einbeittan ásetning að ræða.
Dómsmál Mest lesið Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Innlent Skiptast á eldflaugum í massavís Erlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Erlent Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Erlent Jörðin fær tímabundið annað tungl Erlent Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Innlent Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Innlent Fleiri fréttir Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Verður Þórsmörk þjóðgarður? Vill burt með rándýr, úrelt og óþarfa stimpilgjöld Vonar að sveitarfélögin leysi úr NPA-vandanum Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Fjármögnun NPA-samninga og Bakgarðshlaupið í beinni Samgöngusáttmálinn, Yazan og loftlagsmál á Sprengisandi Slegist með vopnum við skemmtistað Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Lögreglumenn í veikindaleyfi vegna þungra mála Með banvænan sjúkdóm í stöðugri baráttu við Kópavogsbæ Mikill reykur eftir að gleymdist að slökkva á kerti Bið eftir NPA-þjónustu og eftirspurn eftir sæðisgjöfum Arnar Þór á leið í nýjan flokk Anton Sveinn McKee til liðs við Miðflokkinn „Spurðu svo fyrirtækið þitt af hverju það leggur fé í heimsendakölt“ Ekkert sem bendir til þess að sakborningum fjölgi Lífræni dagurinn er í dag Bein útsending: Heilabilun rædd á Alzheimerdegi Ekkert bendi til að sakborningum muni fjölga Telur fleiri falla á nýju bílprófi Maður margra storma íhugar stöðu sína Byssan reyndist leikfang Mamma bara María þegar mæðgurnar eru saman á vakt Hvers vegna að fella ísbirni? Í gæsluvarðhald vegna kókaínsendingar Bræður heiðraðir á 100 ára starfsafmæli: „Einfalt, þægilegt og engin keppni“ Drengnum hafi ekki verið trúað í fyrstu Sjá meira