Fjárfestingarfélagið Varða Capital, sem er að stærstum hluta í eigu Jónasar Hagan Guðmundssonar og Gríms Garðarssonar, tapaði um 450 milljónum króna á síðasta ári. Tapið jókst á milli ára en það nam 267 milljónum á árinu 2017.
Tapið má aðallega rekja til niðurfærslu á eignarhlutum í dóttur- og hlutdeildarfélögum, meðal annars V.M. sem rekur verslanir á borð við Vera Moda og Jack&Jones.
Samkvæmt ársreikningi V.M. var félaginu lagt til nýtt hlutafé upp á 100 milljónir króna í byrjun árs en það var nýtt til að greiða niður vaxtaberandi skuldir. Samhliða var endursamið um afborganir lána. Tap V.M. nam um 128 milljónum á síðasta ári.
Varða Capital kemur að fjármögnun hótelsins við Hörpu og er aðaleigandi Nespresso á Íslandi. Eignir félagsins námu um 2,6 milljörðum króna í lok síðasta árs og eigið fé 966 milljónir.
Varða Capital tapaði 450 milljónum
Þorsteinn Friðrik Halldórsson skrifar

Mest lesið

Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn
Viðskipti innlent

Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB
Viðskipti erlent

Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna
Viðskipti innlent

Íbúðum í byggingu fækkar
Viðskipti innlent

Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum
Viðskipti erlent

Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum
Viðskipti innlent

Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér
Viðskipti innlent

Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista
Viðskipti innlent

Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi
Viðskipti innlent

Um forvitna yfirmanninn
Atvinnulíf