

Harðlínudeild
Það er ekki sérlega algengt að Sjálfstæðismenn urri og bíti hverjir aðra. Nú er það hins vegar nær daglegt brauð. Gamlir og þrautreyndir flokkshestar, sem hafa óbeit á Evrópusambandinu og tortryggja flokksforystuna, hafa farið hamförum vegna þriðja orkupakkans, máls sem engin ástæða er til að æsa sig út af. Ekki þýðir þó að segja þeim það, þeir eru í svo miklum ham að þeir taka ekki rökum. Þessi hópur samanstendur aðallega af eldri karlmönnum, með mikla valdaþörf. Svo sannarlega leiðist þeim ekki að vera í sviðsljósinu. Þeir hafa hátt og finnst greinilega gaman að hlusta á sjálfa sig. Hvað eftir annað þylja þeir rangfærslur sínar um þriðja orkupakkann og banda óþolinmóðir frá sér staðreyndum sem velviljað fólk reynir að ota að þeim.
Það er stórmerkilegt fyrir utanaðkomandi að fylgjast með mönnum, sem greinilega telja það sáluhjálparatriði fyrir þjóðina að Sjálfstæðisflokkurinn sé við völd, leggja jafn mikið á sig og raun ber vitni til að skaða eigin flokk. Pólitískir andstæðingar Sjálfstæðisflokksins, sem eru fjölmargir hér á landi, fylgjast spenntir með. Það er notaleg tilbreyting fyrir þá að leyfa Sjálfstæðismönnum sjálfum að djöflast í eigin flokksforystu. Þarna er sannarlega verið að taka af þeim ómakið.
Merkilegt er svo til þess að vita að harðlínuöflin í Sjálfstæðisflokknum skuli hvað eftir annað sjá ástæðu til að gera lítið úr konum sem gegna ábyrgðarstöðum innan flokksins, ráðherranum Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur og ritara flokksins Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur. Þetta eru vitanlega sömu öflin sem hröktu Evrópusinna úr flokknum á sínum tíma. Sjálfstæðisflokkurinn hafði ekki pláss fyrir þannig þenkjandi fólk – sem er einkennilegt þegar í hlut á flokkur sem sækist eftir því að vera stærsti flokkur landsins.
Enginn ætti að efast um að Þórdís Kolbrún og Áslaug Arna eiga hugmyndafræðilega meira sameiginlegt með forystu Viðreisnar en forystu Miðflokksins sem afturhaldsöflin í Sjálfstæðisflokknum eru stöðugt að viðra sig upp við. Það var ekki pláss fyrir Evrópusinna í Sjálfstæðisflokknum en þar er nægt rými fyrir fólk sem aðhyllist hugmyndafræði Donalds Trump og félaga. Það getur ekki verið auðvelt fyrir frjálslynda fólkið í Sjálfstæðisflokknum að horfa upp á þessi öfl reyna að yfirtaka flokkinn.
Mun flokksforysta Sjálfstæðisflokksins þola álagið og halda áherslum sínum eða fara á taugum? Baráttan heldur áfram og áhugafólk um pólitík fylgist spennt með, en um leið nokkuð furðu lostið. Enda stórmerkilegt að sjá Sjálfstæðismenn úr harðlínudeild flokksins í ofsafullum leiðangri gegn sínum eigin flokki. Óneitanlega koma upp í hugann hin fleygu orð snillingsins Oscars Wilde: „Allir deyða yndi sitt.“
Skoðun

Feluleikur Þorgerðar Katrínar
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Ráðalaus ráðherra
Högni Elfar Gylfason skrifar

Spólum til baka
Snævar Ingi Sveinsson skrifar

Sögulegur dómur Hæstaréttar – staðfestir sjálfstæði Alþingis
Erna Bjarnadóttir skrifar

Að vera fatlaður á Íslandi er full vinna
Birna Ösp Traustadóttir skrifar

Sæluríkið Ísland
Einar Helgason skrifar

Áskorun til Alþingis: Tryggið almannahagsmuni - afnemið samkeppnisundanþágu afurðastöðvanna
Benedikt S. Benediktsson,Breki Karlsson,Halla Gunnarsdóttir,Ólafur Stephensen skrifar

Stormurinn gegn stóðhryssunni
Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar

Kallið þið þetta fjölbreytni?
Hermann Borgar Jakobsson skrifar

Til varnar Eyjafjöllum - og Íslandi öllu
Pétur Jónasson skrifar

Réttlætið sem refsar Jóni
Hjálmar Vilhjálmsson skrifar

Guðmundur Hrafn Arngrímsson er maður sem hefur aldrei rúllað sexum
Kristján Blöndal skrifar

Eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár
Katrín Matthíasdóttir skrifar

Á uppgjör frá TR að koma eldri borgurum á óvart?
Björn Snæbjörnsson skrifar

Bæjarstjórinn í Kópavogi hendir fyrir vagninn
Gunnar Gylfason skrifar

Ábyrg ferðamennska
Hlynur Aðalsteinsson ,Josephine Lilian Roloff skrifar

Að vinda ofan af gullhúðun
Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar

Hvað þýðir það að vera úr sömu sveit?
Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar

Mannúðarkrísa af mannavöldum
Ingólfur Gíslason skrifar

Ekkert réttlætir þjóðarmorð Ísraela í Palestínu
Sveinn Þórhallsson skrifar

Slúbbertar í skjóli BSRB
Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar

Ég er kominn heim
Askur Hrafn Hannesson skrifar

Þetta með tungumálin eru ekki bara orðin
Matthildur Björnsdóttir skrifar

Kennum innflytjendum íslensku!
Kristjana Þórdís Jónsdóttir,Sigrún Eiríksdóttir,Sigrún Gunnarsdóttir skrifar

Skreytt með stolnum fjöðrum
Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar

Er garðurinn þinn alveg grænn?
Sigurður Friðleifsson skrifar

Allt að 29% starfsmannavelta – starfsumhverfi drauma þinna?
Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar

Fimm svikasögur úr raunveruleikanum
Brynja María Ólafsdóttir skrifar

Atlagan að almenna íbúðakerfinu
Halla Gunnarsdóttir skrifar