Fréttablaðið hafði samband við nokkra hótelstjóra í Reykjavík, á Akureyri og Suðurlandi sem greiða 15 til 20 prósent sölulaun fyrir hverja bókun hjá Booking og Expedia. Vegna viðskiptalegra hagsmuna treystu þeir sér ekki til að koma fram undir nafni en ljóst er að háar söluþóknanir leggjast mjög þungt í þá.
„Okkur er stillt upp við vegg,“ segir hótelstjóri sem rekur lítið hótel á Suðurlandi. „Fyrstu árin var ég að greiða 20 prósent af hverri bókun og var að gefast upp. Þetta var ekki að reka sig.“ Hann segist vera háður bókunum einstaklinga því að hópbókanir á vegum ferðaskrifstofa hafi ekki verið nægilega áreiðanlegar. Nú fari á bilinu 80 til 90 prósent viðskiptanna í gegnum bókunarsíðurnar. Um tíma ákvað hótelstjórinn að fara í lægstu þjónustuleið, og 15 prósenta sölulaun, en þá voru auglýsingar hans færðar neðar á leitarsíðurnar. Ákvað hann því að fara aftur í dýrari þjónustuna en greiðir nú 18 prósent. „Þeir hafa algjört hreðjatak á okkur,“ segir hann.
Hótelstjóri sem rekur meðalstórt hótel á Akureyri segist greiða 15 prósenta sölulaun. „Það er nógu ógeðslega mikið. Svo ef maður auglýsir verð á eigin vefsíðu, sem er lægra en hjá þeim, þá setja þeir okkur neðar á leitarsíðunni. Þeir eru mjög fljótir að refsa,“ segir hann.
„Þessi háu sölulaun hafa verið rædd í langan tíma án ásættanlegrar niðurstöðu,“ segir hótelstjóri í Reykjavík. „Hótelstjórar hafa staðið upp á fundum og bent á fílinn í herberginu.“ Bendir hann á að erlendis greiði hótel allt niður í 12 prósenta sölulaun. „Þeir virðast komast upp með að rukka meira hérna.“
Evrópusambandið hefur gefið út viðvaranir um að Booking.com sé markaðsráðandi fyrirtæki og erfitt sé að snúa þróuninni við. Árið 2017 reyndu tyrknesk yfirvöld að stöðva bókanir fyrirtækisins þar í landi en enn geta útlendingar pantað tyrknesk hótelherbergi. Umsvif Expedia eru minni en fyrirtækið hefur verið að sækja í sig veðrið.

Alvarlegast í málinu að mati Jóhannesar er hversu háð íslensk ferðaþjónustufyrirtæki eru bókunarþjónustum og því tómt mál að losna alfarið undan þeim. „Sniðganga þessara aðila myndi hafa víðtæk áhrif mjög hratt á alla ferðaþjónustuna.“
Jóhannes segir að til tals hafi komið að setja upp sérstakt bókunarkerfi fyrir Ísland, síðast hjá Ferðamálastofu síðastliðið haust. „Þá kemur alltaf upp spurningin: Hver á að borga fyrir bókunarvélina og markaðssetningu? Þetta er stærra mál en það hljómar,“ segir Jóhannes og bendir á að Booking og Expedia hjálpi einnig ferðaþjónustufyrirtækjum að auglýsa sig.