Hátæknifyrirtækið Skaginn, sem þróar, framleiðir og selur tækjabúnað fyrir matvælaiðnaðinn, hagnaðist um 397 milljónir króna á síðasta ári en til samanburðar var hagnaður fyrirtækisins 340 milljónir á árinu 2017.
Tekjur Skagans námu 8,1 milljarði og jukust um 2,4 milljarða á milli ára. Skaginn er hluti af samstæðunni Skaginn 3X ásamt 3X Technology, og Þorgeir & Ellert. Eigendur samstæðunnar eru Ingólfur Árnason, stofnandi Skagans, og eiginkona hans en Ingólfur sagði í viðtali við Markaðinn í sumar að samanlagðar tekjur yrðu tíu milljarðar króna á þessu ári.
Skaginn 3X er með um 300 starfsmenn. Þar af starfa um 200 á Akranesi, um 70 á Ísafirði en aðrir eru í Reykjavík. Stjórn Skagans hefur lagt til að á þessu ári verði allt að 390 milljónir króna greiddar í arð til hluthafa.
Skaginn hagnast um 400 milljónir
Þorsteinn Friðrik Halldórsson skrifar

Mest lesið

Ofurtollarnir lækkaðir tímabundið
Viðskipti erlent

Ráðinn framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi
Viðskipti innlent

Ríkið eignast hlut í Norwegian
Viðskipti erlent


Svandís tekur við Fastus lausnum
Viðskipti innlent


Hækkanir á Asíumörkuðum
Viðskipti erlent

Ætlar ekki að deyja í smán og gefur frá sér auðæfin
Viðskipti erlent

Ræða við „hrokafulla“ Kana vegna áhyggja af tollum Trumps
Viðskipti erlent

Tæknin geti komið í veg fyrir þjófnað
Viðskipti innlent