Skoðun

Fiskeldi er fjöregg

Sigurður Pétursson skrifar
Í grein Bjarna Brynjólfssonar frá 16. júlí sl. undir yfirskriftinni „Leikurinn að fjöregginu“ er dregin upp dökk mynd af fiskeldi í sjó og gefið í skyn að ef laxeldi yrði leyft í Ísafjarðardjúpi myndi það leiða til neikvæðra áhrifa á allt dýralíf á svæðinu. Reyndar minnist greinarhöfundur ekkert á fjölmörg jákvæð áhrif fiskeldis á fyrrum sveitunga sína í Djúpinu.

Fiskeldisbóndanum frá Vestfjörðum finnst upplýsingagjöfin frá skrifstofunni í Reykjavík ekki alveg vera í samræmi við þá reynslu sem þegar er komin af fiskeldinu.Óupplýst umræða gagnast engum og best er þeir sem áhuga hafa á að kynna sér fiskeldið á Vestfjörðum komi og skoði þá nútímalegu starfsemi sem þar er nú þannig að hægt sé að kynna sér staðreyndir og mynda sér síðan skoðun á þessari einni umhverfisvænustu framleiðslu dýrapróteina sem völ er á.

Fiskeldi hefur verið að byggjast upp á undanförnum árum og nærtækt að líta til áralangs eldis í Dýrafirði. Ólíkt því sem haldið er fram í grein Bjarna er eldisbúnaður í dag í samræmi við hörðustu kröfur sem fyrirfinnast (NS9415 staðalinn). Eldið er þar að auki vottað samkvæmt strangasta umhverfisstaðli Aquaculture Stewardship Council (ASC) fyrir eldisframleiðslu. Engin sýklalyf eru notuð í framleiðslunn. Hér fara saman hagsmunir eldisbænda og umhverfisins sem og þær stöngu kröfur sem neytendur gera á vistvæna matvælaframleiðslu.

Laxalús getur borist frá villtum laxi í eldið en það sem Bjarni ekki þekkir er að í samráði við vísindamenn höfum við hingað til haldið þessu sníkjudýri niðri með þróun aðferða á sambýli hrognkelsa og laxa þar sem hinir fyrrgreindu éta lúsina af laxinum.

Þau áhrif sem eldissvæðin hafa skapað varðandi bolfisk í firðinum eru að villti fiskurinn virðist sækja í skjólið af kvíasvæðunum sem hefur myndað ný veiðisvæði sem smábátasjómenn hafa notið góðs af. Nærri einu af helstu eldissvæðunum í Dýrafirði er æðarvarp sem hefur dafnað mjög vel í annars erfiðu árferði fyrir marga æðabændur.

Eldið í Dýrafirði hefur einnig haft jákvæð áhrif á samfélagið þar sem Arctic Fish er nú orðinn stærsti atvinnuveitandinn á svæðinu og sömu sögu er að segja um eldi á silung og þorski í Ísafjarðardjúpi.

Í niðurlagi greinar leggur höfundur til að laxeldið fari á land. Arctic Fish er þegar með seiðaframleiðslu sína í endurnýtingarkerfi (RAS) í nýjum byggingum, þeim stærstu á Vestfjörðum, þar sem framleidd eru upp undir 500 tonn af lífmassa. Ef færa ætti áætlað burðarþol Ísafjarðardjúps upp á land þyrfti til þess mikið landrými og mun meira rafmagn en tiltækt er á þessu svæði.

Uppbygging fiskeldis í sjó á eldissvæðum á landsbyggðinni er í samræmi við stefnu Matvælastofnunar Sameinuðu Þjóðanna (FAO), sem leggur áherslu á að auka umhverfisvæna matvælaframleiðslu, þar sem sérstök áhersla er á fiskeldi í sjó. Ég tel að við Íslendingar ættum að halda áfram að nýta bakgrunn okkar í sjávarútvegi og fiskeldi sem og nýta þær náttúrulegu auðlindir sem við eigum í hreinu vatni, jarðvarma og hreinni raforku til uppbyggingar á framleiðslu á stórum seiðum/unglax til fiskeldis í sjó. Ísafjarðardjúp er að mörgu leyti sambærilegt Dýrafirðinum þar sem þegar hefur verið byggt í þrepum upp laxeldi og ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu á varkáran hátt að hefja eldi í Djúpinu.

Höfundur er fiskeldisbóndi hjá Arctic Fish.


Tengdar fréttir

Leikurinn að fjöregginu

Ákafir talsmenn sjókvíaeldis á laxi í fjörðum landsins hafa tíðrætt þann ábata sem sjávarbyggðir á eldissvæðunum geta haft af eldinu svo og þjóðhagslegan ávinning




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×