Sex mánaða fangelsisdómur yfir rútubílstjóra í banaslysi Kolbeinn Tumi Daðason og Margrét Helga Erlingsdóttir skrifa 28. júní 2019 14:22 Frá vettvangi slyssins þann 27. desember 2019. Vísir/Vilhelm
Rútubílstjóri sem ók rútu sem ekið var aftan á fólksbíl og valt út af Suðurlandsvegi vestur af Kirkjubæjarklaustri í desember 2017 hefur verið dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi. Héraðsdómur Suðurlands kvað upp dóm sinn í gær.Fjörutíu og fjórir kínverskir ferðamenn voru um borð í rútunni. Tveir ferðamenn létust og fjölmargir voru fluttir slasaðir af vettvangi þar af tólf með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Meðal hinna slösuðu var bílstjórinn sem hlaut dóm í gær. Ökumaður fólksbílsins, ferðamaður frá Litháen, var að beygja inn á útsýnisstað vestan við Hunkubakka þegar rútan lenti aftan á bifreiðinni og síðan norður fyrir veg og valt þar á hliðina. Hann slasaðist ekki alvarlega.Ökutækið átti ekki að vera í umferð Rútubílstjórinn var sviptur ökuréttindum í tvö ár frá dómsuppsögu. Þá þarf hann að greiða á þriðju milljón króna í sakarkostnað. Bíltæknirannsókn á hópferðabifreiðinni leiddi í ljós að hemlageta hennar hafi verið verulega ábótavant. Aðeins eitt hjól var fullneglt og örfáir naglar í hinum. Þrátt fyrir það var hálkan á veginum það mikil að óvæst er að full hemlageta bifreiðarinnar og fullnegldir hjólbarðar hefðu getað komið í veg fyrir óhappið. Bifreiðin hafi í raun ekki átt að vera í umferð vegna skorts á viðhaldi. Ökumaðurinn kvaðst fyrir atvikið hafa tekið eftir að helmarnir hafi tekið misjafnt í hjólin. Ók á um 100 km/klst rétt fyrir slysið Samkvæmt ökurita bifreiðarinnar ók ökumaðurinn á 100-102 km/klst rétt fyrir slysið. Klukkan 10:05 mældist hraðinn 101 km/klst en stuttu síðar dró ökumaðurinn skyndilega og snögglega úr hraðanum. Ökumaðurinn kvaðst sjálfur hafa fært sig yfir á miðjan vegarhelming vegna bifreiðar, hverrar ökumaður ók löturhægt. Þegar ákærði hafi nálgast bifreiðina segir hann að tvær stúlkur hafi gengið þvert yfir veginn og hann í framhaldinu fært sig yfir á hægri vegarhelming. Þegar ökumaðurinn hafi sveigt aftur yfir á hinn vegarhelminginn hafi áðurnefnd bifreið verið komin nánast út fyrir veg og henni allt í einu ekið í veg fyrir ákærða án þess að gefa stefnuljós. Ökumaður segist þá hafa keyrt þversum og eftir það muni hann ekki meir. Þegar ástand bifreiðarinnar er virt, hraði hennar rétt fyrir slysið og ástand vegarins telja dómarar nægilega sannað að ákærði hafi með háttsemi sinni orðið valdur að dauða tveggja farþega í bifreiðinni og alvarlegum meiðslum tveggja annarra farþega.Fréttin var uppfærð með frekari upplýsingum kl. 15.00
Dómsmál Rútuslys við Kirkjubæjarklaustur Samgönguslys Skaftárhreppur Tengdar fréttir Fimm enn á Landspítalanum eftir rútuslysið Einn þeirra er enn á gjörgæslu. 2. janúar 2018 14:01 Minntust unga ferðamannsins sem lést eftir rútuslysið í Eldhrauni Hópur fólks kom saman í bænahúsi Fossvogskirkju í dag til að minnast Ziyu Duan. 25. janúar 2018 14:34 Berjast fyrir lífi sínu eftir rútuslysið Einn lést og fjöldi er sár eftir að rúta endaði utan vegar skammt frá Kirkjubæjarklaustri. 28. desember 2017 11:15 Annar ferðamaður látinn eftir slysið í Eldhrauni Kínverskur karlmaður sem fluttur var á sjúkrahús eftir rúsuslys í Eldhrauni í desember er látinn. 15. janúar 2018 13:02 Kínversk kona á þrítugsaldri lést í slysinu Tilkynnt var um slysið á tólfta tímanum í morgun og strax var ljóst að um mjög alvarlegt slys væri að ræða. 27. desember 2017 20:11 Æfingar skiptu sköpum á slysstað Rúmlega 60 félagar úr Slysavarnafélaginu Landsbjörg komu á einn eða annan hátt að aðgerðum vegna slyssins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu. 27. desember 2017 22:30 Mest lesið Þrír látnir í risaöldum á Tenerife Erlent Aflýsa yfir þúsund flugferðum Erlent Var komin á slæman stað og fór ekki úr húsi án fylgdar Innlent Gestir Bylgjunnar fá að synda undir þessu þaki Erlent Fölsuð megrunarlyf líklega á leið til landsins Innlent Getur ríkislögreglustjóri setið áfram? Innlent Nærri milljón rýmir vegna ofurfellibyls Erlent Engin ástæða til að breyta neinu Innlent Réðst á lögreglumann í miðbænum Fréttir Óljóst hvað olli því að rútan hafnaði utan vegar Innlent Fleiri fréttir Margir keypt fleiri en einn vegna fordómafullrar umræðu Borgarstjórnarsigur lífsnauðsynlegur Sjálfstæðismönnum Brunaði af stað frá ölvunarpósti en var handtekinn við Hamraborg Var komin á slæman stað og fór ekki úr húsi án fylgdar Þriggja stiga skjálfti í Öskju Getur ríkislögreglustjóri setið áfram? Píratar kjósa formann í lok mánaðar Reyndi að flýja lögreglu en endaði uppi á kanti Engin ástæða til að breyta neinu Fölsuð megrunarlyf líklega á leið til landsins Óljóst hvað olli því að rútan hafnaði utan vegar Geta haft opið um helgar en algjör óvissa um húsnæðismálin Brosið fer ekki af Hrunamönnum Eldur bak við innstungu reyndist minni háttar Hætta á fölsuðum megrunarlyfjum og leitað í ræturnar Útkall á mesta forgangi vegna kajakræðara í vanda „Mikið svakalega hlakka ég til að hreinsa til í ráðhúsinu“ Í beinni: Skyndifundur Sjálfstæðismanna á Grand Hotel Alltaf hægt að gera betur á meðferðarheimilunum Menningarverðlaun Árborgar til hjóna á Eyrarbakka Seatrips gert að greiða hundrað milljónir vegna tjóns á flutningaskipi Óskiljanleg lánaviðmið og Grammy-tilnefning stórstjörnunnar Eldur í þúsund fermetra fjósi með skepnum inni Happdrætti Háskólans sýknað af tugmilljóna kröfu Catalinu Veittist fyrst að dyravörðum og svo að lögreglumönnum Fluttur á slysadeild eftir hópárás Grunaður um að aka undir áhrifum með börnin aftur í Sótti konuna á lögreglustöðina áður en hann réðst á hana Hrekur Walt-Disney líkingar þingmanns Fjöldi gesta á vellinum myndi takmarkast við 5000 Sjá meira
Minntust unga ferðamannsins sem lést eftir rútuslysið í Eldhrauni Hópur fólks kom saman í bænahúsi Fossvogskirkju í dag til að minnast Ziyu Duan. 25. janúar 2018 14:34
Berjast fyrir lífi sínu eftir rútuslysið Einn lést og fjöldi er sár eftir að rúta endaði utan vegar skammt frá Kirkjubæjarklaustri. 28. desember 2017 11:15
Annar ferðamaður látinn eftir slysið í Eldhrauni Kínverskur karlmaður sem fluttur var á sjúkrahús eftir rúsuslys í Eldhrauni í desember er látinn. 15. janúar 2018 13:02
Kínversk kona á þrítugsaldri lést í slysinu Tilkynnt var um slysið á tólfta tímanum í morgun og strax var ljóst að um mjög alvarlegt slys væri að ræða. 27. desember 2017 20:11
Æfingar skiptu sköpum á slysstað Rúmlega 60 félagar úr Slysavarnafélaginu Landsbjörg komu á einn eða annan hátt að aðgerðum vegna slyssins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu. 27. desember 2017 22:30