Fyrirtæki úti á landi bjartsýnni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 13. júní 2019 11:10 53% þátttakenda sögðust búast við þrengingum í efnahagslífinu næsta árið. 2000 fyrirtæki tóku þátt í könnuninni. Fréttablaðið/Stefán
Fyrirtæki á landsbyggðinni eru almennt bjartsýnni en fyrirtæki af höfuðborgarsvæðinu. Þetta er ein af niðurstöðunum sem kom út úr fyrirtækjakönnun sem gerð var í landsbyggðunum öllum og gefin var út í gær. Það sést á því að 22% þátttakenda sögðust ætla að ráða nýtt starfsfólk en eingöngu 13% ætlaði að fækka starfsmönnum. Til samanburðar þá gaf Vetrarkönnun Gallup það til kynna að 12% ætluðu að fjölga starfsmönnum á meðan 30% ætlaði að fækka þegar 400 stærstu fyrirtæki landsins voru spurð. Um er að ræða könnun sem Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi leiddu vinnuna við. Könnunin er samstarfsverkefni atvinnuþróunarfélaga, Byggðastofnunar og landshlutasamtaka á Íslandi. „Jákvæðnin“ varð enn þá meiri þegar svar við fjárfestingarhugleiðingum var greint. Þá sögðust 30% ætla að fjárfesta á meðan 12% sögðust stefna að því að selja eða losa sig við framleiðslutæki á annan hátt. Þetta voru svörin jafnvel þó þátttakendur byggjust við samdrætti í tekjum. 27% þátttakenda bjuggust við samdrætti í eigin tekjum á meðan 21% bjóst við aukningu þeirra. Að auki gerðu þátttakendur sér „fulla“ grein fyrir neikvæðum efnahagshorfum. 53% þeirra bjóst við þrengingum í efnahagslífinu næstu 12 mánuði á meðan 8% bjuggust við að aðstæður bötnuðu. Er sú ályktun dregin að svo virðist sem sókn sé besta vörnin.Bændur ekki af baki dottnir Í skýrslunni er ferðaþjónustu, sjávarútvegi og landbúnaði sérstakur gaumur gefinn. Samkvæmt niðurstöðunum má almennt segja að bændur séu ekki af baki dottnir. Á óvart hafi komið hvað landbúnaðurinn bar sig vel, einkum ef hann var borinn saman við sjávarútveg. Báðar atvinnugreinarnar hafa lent í áföllum og búa sig undir einhverjar og jafnvel miklar þrengingar – einkum landbúnaðurinn. „Þarna má nefna hækkun veiðigjalda, aukin innflutning á erlendum landbúnaðarafurðum og breyttan lífsstíl vegna loftslagsmála svo eitthvað sé nefnt. Þó er afkoman verri í landbúnaði einstakra landshluta þegar horft var til lengri tíma. Það var á Vesturlandi, Austurlandi og jafnvel Norðurlandi eystra.“ Þá hafi einnig verið áhugavert að sjá atvinnugreinarnar vera á öndverðum meiði varðandi fjárfestingar og mannaráðningar. „Sjávarútvegurinn hyggst ráðast í fjárfestingar en segja upp fólki á meðan landbúnaðurinn hefur meiri hug á ráða fólk en hefur alls ekki mjög háleitar hugmyndir í fjárfestingum í samanburði við sjávarútveginn. Það er hins vegar alls ekki þannig að landbúnaðurinn ætli ekki að ráðast í fjárfestingar heldur er samanburður við sjávarútveginn óhagstæður. Mestur hugurinn til fjárfestinga er hjá sunnlenskum bændum – sem kemur reyndar ekki á óvart þar sem Suðurlandið er hentugasta landbúnaðarhérað landsins.“ Niðurstöðurnar byggja á spurningakönnun sem var lögð fyrir fyrirtæki í öllum landshlutum, nema á höfuðborgarsvæðinu, í nóvember 2018 og stóð yfir til loka janúar 2019. Nokkuð mörg fyrirtæki af höfuðborgarsvæðinu voru hins vegar með í könnuninni en það er af því að þau starfa á landsbyggðinni. Rúmlega 2000 fyrirtæki tóku þátt. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi leiddu vinnuna við gerð könnunarinnar, en hún er samstarfsverkefni atvinnuþróunarfélaga, Byggðastofnunar og landshlutasamtaka á Íslandi og er þetta önnur skýrslan sem kemur út á vegum þess. Ætlunin er að halda því áfram og gera könnun meðal fyrirtækja og íbúa um land allt með reglubundnum hætti auk annarra tilfallandi verkefna. Samstarfsvettvangurinn mun gefa út efni sitt í vefriti sem kallað er Deigla og kemur fyrst út núna undir því nafni.Skýrsluna í heild má lesa hér.
Ferðamennska á Íslandi Landbúnaður Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Lífið samstarf Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira