Eyrún Magnúsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Kjarnans. Hún hefur þegar hafið störf að því er Kjarninn greinir sjálfur frá.
Eyrún hefur verið umsjónarmaður og ritstjóri Sunnudagsblaðs Morgunblaðsins undanfarin sjö ár. Þar áður sinnti hún ráðgjafarstörfum sem sneru meðal annars að verkefnastjórnun, markaðs- og útgáfumálum auk stefnumótunarvinnu.
Þá var hún einn stjórnenda Kastljós á árum sínum hjá RÚV frá 2004-2006. Hún er með BA-gráðu í hagfræði með sagnfræði sem aukagrein. Þá hefur hún lokið meistaranámi í stjórnun og stefnumótun frá viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
Hjalti Harðarson gegndi stöðu framkvæmdastjóra Kjarnans til byrjunar árs 2018 þegar hann söðlaði um. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, hefur sinnt framkvæmdastjórastöðunni samhliða ritstjórnarstörfum síðan þá.
Frá Mogganum til Kjarnans
Kolbeinn Tumi Daðason skrifar

Mest lesið

Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB
Viðskipti erlent

Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn
Viðskipti innlent

Íbúðum í byggingu fækkar
Viðskipti innlent

Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum
Viðskipti erlent

Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum
Viðskipti innlent

Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna
Viðskipti innlent

Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér
Viðskipti innlent


Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi
Viðskipti innlent

Um forvitna yfirmanninn
Atvinnulíf