Hreiðari og Magnúsi ekki gerð refsing Jóhann Óli Eiðsson skrifar 15. febrúar 2019 08:00 Hreiðar Már Sigurðsson. Vísir/Vilhelm
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, og Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, voru í Landsrétti í gær fundnir sekir um fjárdrátt og hlutdeild í fjárdrætti í Marple-málinu svokallaða. Hvorugum var gerð refsing vegna brota sinna þar sem þeir hafa náð sex ára refsihámarki auðgunarbrota með fyrri dómum í hrunmálum. Ákært var í þremur liðum en sýknað í tveimur þeirra. Sakfellt var í lið sem sneri að millifærslu á þremur milljörðum króna frá Kaupþingi hf. til Kaupþings LÚX en þaðan enduðu peningarnir á reikningi félagsins Marple. Fjárfestirinn Skúli Þorvaldsson, eigandi Marple, og Guðný Arna Sveinsdóttir, fyrrverandi fjármálastjóri Kaupþings, voru sýknuð af ákærum sínum. Með því staðfesti Landsréttur sýknudóm Guðnýjar en Skúli hafði hlotið sex mánaða dóm í héraði. Þá var viðurkennd skaðabótakrafa Kaupþings á hendur Hreiðari Má og Magnúsi vegna brota þeirra. Tvímenningarnir þurfa að greiða þriðjung málsvarnarlauna verjenda sinna í héraði og fyrir Landsrétti. Annar kostnaður fellur á ríkissjóð.Fréttin hefur verið leiðrétt en í fyrri útgáfu sagði að Skúli hefði verið ákærður fyrir fjárdrátt eða umboðssvik. Það var ekki rétt. Hann var ákærður fyrir hilmingu og til vara peningaþvætti. Beðist er velvirðingar á þessu.
Birtist í Fréttablaðinu Dómsmál Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira