Atli Már upplýsingafulltrúi Secret Solstice Birgir Olgeirsson skrifar 15. janúar 2019 10:40 Atli Már Gylfason
Atli Már Gylfason hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi tónlistarhátíðarinnar Secret Solstice en hátíðin verður haldin í sjötta sinn í Laugardalnum dagana 21. til 23. júní. Atli Már hefur víðtæka reynslu úr fjölmiðlum og hefur starfað á þeim vettvangi í tæpa tvo áratugi. Nú síðast sá hann um rannsóknarvinnu fyrir nýja sjónvarpsþætti fyrir framleiðslufyrirtækið Skot Productions. Áður gegndi hann starfi rannsóknarblaðamanns hjá DV og Stundinni auk þess sem hann hefur starfað sem útvarpsmaður á útvarpsstöðvunum FM957 og Flass 104,5 (nú KissFM) svo fátt eitt sé nefnt. „Ég er virkilega spenntur fyrir þessu verkefni en tónlistarhátíðin Secret Solstice hefur verið í miklu uppáhaldi hjá mér frá því hún var fyrst haldin árið 2014. Það er frábær hópur sem kemur að skipulagningu og framkvæmd Secret Solstice í ár og útlit fyrir eina flottustu tónlistarhátíð landsins frá upphafi,“ er haft eftir Atla Má í tilkynningunni. „Auðvitað verður það aðeins öðruvísi að sitja hinum megin við borðið og koma upplýsingum til fjölmiðla og almennings í stað þess að skrifa fréttir af hátíðinni eins og undanfarin ár en það er áskorun sem ég hlakka til að takast á við.“ Atli Már verður tengiliður fjölmiðla við framkvæmdaaðila Secret Solstice og mun kappkosta að aðstoða fjölmiðla sem kostur er við upplýsingaöflun, bæði fyrir hátíðina og á meðan á henni stendur. Hægt er að senda fyrirspurnir um hátíðina á atli@secretsolstice.isc
Secret Solstice Vistaskipti Mest lesið Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Viðskipti innlent Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Viðskipti erlent Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Viðskipti innlent Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Atvinnulíf Fleiri fréttir Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Sjá meira