
Hvað gerðum við rangt?
Friður og framfarir
Árin frá 1945 hafa ekki aðeins verið friðartími í Evrópu og Ameríku heldur einnig stórfellt framfaraskeið hvernig sem á er litið. Tekjur á mann í Evrópu hafa næstum fjórfaldazt frá 1960 og þrefaldazt í Bandaríkjunum líkt og í heiminum öllum. Það tekur nútímafólk því bara þrjá eða fjóra mánuði að afla tekna sem kostuðu forfeður okkar og mæður heils árs fyrirhöfn 1960. Evrópa hefur dregið á Bandaríkin. Meðalævi Evrópumanna var hálfu ári skemmri en meðalævi Bandaríkjamanna 1960 og er nú orðin tveim árum lengri. Þjóðverjar voru að meðaltali 2-3 cm lægri í loftinu en hvítir Bandaríkjamenn 1960 og eru nú 2-3 cm hávaxnari.
Hverju sætir þessi viðsnúningur? Nærtæk skýring er að kjörum almennings er jafnar skipt í Evrópu en í Bandaríkjunum. Velferðarkerfi Þýzkalands og annarra Evrópulanda er lengra á veg komið en velferðarkerfi Bandaríkjanna sem sætir fram á þennan dag linnulausum árásum af hálfu óvinveittra afla á vettvangi stjórnmálanna.
Misskipting hefur afleiðingar
Þar til nýlega hirtu margir lítt um skiptingu auðs og tekna. Tertan skiptir öllu máli, sögðu menn keikir, en skipting hennar er aukaatriði. Þar til fyrir fáeinum árum þótti Efnahags- og framfarastofnuninni (OECD) í París ekki vert að birta staðtölur um tekjuskiptingu í aðildarlöndum sínum. Enn í dag birta alþjóðastofnanir engar tölur um eignaskiptingu, en það gera nú aðrir undir forustu franska hagfræðingsins Thomas Piketty. Tölur um eignaskiptingu eru sums staðar feimnismál vegna þeirra eigna sem auðmenn hafa falið í skattaskjólum eins og Panama og eru nú fyrst að líta dagsins ljós í boði kjarkaðra uppljóstrara. Faldar eignir skekkja tölur um skiptingu.
Hugmyndin um að skipting auðs og tekna skipti ekki máli var að málið snerist um öfund. Menn sögðu: Markaðsbúskapur kallar á auðmenn og fjárfesta og við skulum fagna þeim frekar en að amast við þeim. En allt hefur sín takmörk. Ef misskipting gengur of langt gengur hún fram af fjölda fólks.
Bandaríkin, Bretland, Ísland
Byrjum í Bandaríkjunum. Hlutdeild ríkasta hundraðshluta bandarískra heimila í þjóðartekjum, þ.e. þess 1% heimilanna sem hæstar höfðu tekjurnar fyrir skatt, var 20% 1920-1930, og þá skall heimskreppan á. Síðan minnkaði hlutdeild ríkasta hundraðshlutans smám saman í 10% 1970-1980, sumpart í krafti velferðarlöggjafar að evrópskri fyrirmynd. Auðmenn létu ekki bjóða sér slíka leiðréttingu. Ríkasti hundraðshlutinn vestra tekur nú aftur til sín 20% af þjóðartekjunum og stefnir hærra. Tugir milljóna Bandaríkjamanna sitja eftir með sárt ennið einkum til sveita og binda vonir sínar um betri tíð við Trump forseta.
Af Bretlandi er svipaða sögu að segja. Þar minnkaði hlutdeild ríkasta hundraðshluta heimilanna úr 20% af þjóðartekjum 1920-1930 í 6% 1970-1980 og hefur síðan aukizt aftur í 14%. Margir Bretar, einkum utan borganna, telja sig hafa orðið undir í baráttunni um brauðið og þeir þökkuðu fyrir sig með því að greiða atkvæði með útgöngu Breta úr ESB. Svipuð þróun hefur átt sér stað víða annars staðar um álfuna þótt sveiflurnar þar séu minni en í Bandaríkjunum og Bretlandi.
Danmörk er undantekningin sem sannar regluna. Þar hefur hlutdeild ríkasta hundraðshluta heimilanna minnkað hægt og bítandi úr 13% af þjóðartekjum 1920-1930 í 6% nú. Danir skilja að skipting tertunnar skiptir máli.
Bandaríkin, Bretland, Ísland, …
Í Bandaríkjunum ríkir nú tilfinnanlegt ófremdarástand. Alríkisstjórnin greiddi mörgum starfsmönnum sínum ekki laun fyrir jólin vegna greiðslustöðvunar. Virðuleg dagblöð, sagnfræðingar, stjórnmálafræðingar o.fl. líkja Trump forseta við Hitler og Mússólíni. Bretland stendur einnig frammi fyrir miklu raski ef landið yfirgefur ESB í marz n.k. án samnings sem myndi tryggja slétt og felld umskipti. Frakkar mótmæla ríkisstjórn Macrons forseta með háreysti helgi eftir helgi. Mótmælendurnir koma einkum frá þeim hlutum landsins þar sem fólkinu hefur fækkað mest. Þannig getum við farið land úr landi. Þau sem telja sig hafa orðið undir heimta leiðréttingu sinna mála. Það sem við gerðum rangt var að leyfa misskiptingunni að ganga of langt.
Launþegasamtökin hér heima ætla að heimta leiðréttingu á nýja árinu. Þau segja: Hingað og ekki lengra. Nú er komið að okkur að taka til snæðings, hugsa þau, svo ég vitni til afrísks máltækis sem er ættað af sléttunum þar sem ljónin berjast um bráðina. Launþegasamtökin hafa afl til þess líkt og fyrr enda hefur vinnulöggjöfin í landinu staðið óbreytt frá 1938.
Skoðun

Munu Ísraelsmenn sprengja bifreið páfa í loft upp?
Einar Baldvin Árnason skrifar

Að skapa framtíð úr fortíð
Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar

Tími til umbóta í byggingareftirliti
Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar

Stærð er ekki mæld í sentimetrum
Sigmar Guðmundsson skrifar

Áður en íslenskan leysist upp
Gamithra Marga skrifar

Lögfræðingurinn sem gleymdi tilgangi laga
Sigríður Svanborgardóttir skrifar

Þétting byggðar – nokkur mistök gjaldfella ekki stefnuna
Samúel Torfi Pétursson skrifar

Breyta lífum til hins betra eða dvelja áfram í hýðum síns vetra?
Tómas Ellert Tómasson skrifar

Hverjum þjónar nýsköpunin?
Halldóra Mogensen skrifar

Heilbrigðisráðherra og stjórn VIRK hafa brugðist okkur
Eden Frost Kjartansbur skrifar

Þegar ríkið fer á sjóinn
Svanur Guðmundsson skrifar

Íbúðarhúsnæði sem heimili fólks
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Íslenskumælandi hjúkrunarfræðingar
Guðbjörg Pálsdóttir skrifar

Heilbrigðisstarfsfólk eru ekki skotmörk
Elísabet Herdísar Brynjarsdóttir,Hildur Harðardóttir,Tryggvi Egilsson,Sunna Snædal,Yousef Tamimi,Örvar Gunnarsson skrifar

Leiðrétting veiðigjalda og varðstaðan um sérhagsmuni
Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar

Þjóðminjasafn án fornleifafræðinga
Snædís Sunna Thorlacius,Ingibjörg Áskelsdóttir skrifar

Opið bréf til stjórnmálafólks um málefni Palestínu og Ísraels
Hjálmtýr Heiðdal skrifar

Í lífshættu eftir ofbeldi
Jokka G Birnudóttir skrifar

Verið er að umbreyta borginni en hvað viljum við?
Helgi Áss Grétarsson skrifar

Hvers vegna skiptir máli hvernig talað er um velferð dýra?
Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar

Gróður, einmanaleiki og samfélagsleg samheldni
Auður Kjartansdóttir skrifar

Ljúkum því sem hafið er - ný bálstofa í Gufunesi
Ingvar Stefánsson skrifar

Raddir fanga
Helgi Gunnlaugsson skrifar

Kann Jón Steindór ekki að reikna?
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Lífið sem var – á Gaza
Israa Saed,Katrín Harðardóttir skrifar

Vöxtur inn á við og blönduð borgarbyggð er málið
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir skrifar

Tilskipanafyllerí Trumps
Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar

Öfgar á Íslandi
Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar

Borg þarf breidd, land þarf lausnir
Ásta Björg Björgvinsdóttir skrifar

Framtíð safna í síbreytilegum samfélögum
Dagrún Ósk Jónsdóttir skrifar