Rekstrartekjur Regins námu 5,8 milljörðum Birgir Olgeirsson skrifar 6. nóvember 2018 16:49 Helgi S. Gunnarsson er forstjóri Regins fasteignafélags. Vísir/GVA
Rekstrartekjur hlutafélagsins Regins námu 5,8 milljörðum króna í fyrra. Þar af námu leigutekjur 5,4 milljörðum króna. Hækkun leigutekna frá sama tímabili í fyrra var 14%. Hækkun leigutekna er að mestu tilkomin vegna nýrra eigna. Félagið sérhæfir sig í leigu á atvinnuhúsnæði og segir eftirspurnina eftir slíku góða. Það sem af er ári hefur verið gengið frá nýjum leigusamningum fyrir um 37.000 fermetrum. Um 40% af þessum samningum er endurnýjun á eldri samningum. Eignasafn Regins er sagt samanstanda af atvinnuhúsnæði með háu útleiguhlutfalli og traustum leigutökum. Fjöldi fasteigna í lok tímabilsins var 121 og heildarfermetrafjöldi þeirra eigna er um 370 þúsund. Útleiguhlutfall á safni Regins er um 97,5% miðað við þær tekjur sem 100% útleiga gæfi. Fasteignasafn Regins er metið á gangvirði í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Safnið er metið í lok hvers árs í tengslum við gerð ársreiknings sem og í lok hvers uppgjörstímabils. Matsbreyting á fyrstu níu mánuðum ársins nam 1.932 m.kr. Þann 12. september lauk lokuðu útboði á nýjum skuldabréfaflokki félagsins, REGINN250948 sem gefinn var út undir útgáfuramma félagsins. Seld voru skuldabréf fyrir 17.180 m.kr. skuldabréfin bera 3,6% fasta verðtryggða vexti, eru til 30 ára og voru seld á pari. Flokkurinn er veðtryggður með sértæku tryggingarfyrirkomulagi. Skráning skuldabréfaflokksins á Aðalmarkað Nasdaq Iceland hf., fór fram í október sl.
Mest lesið Tónabíó opnar á ný Viðskipti innlent Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Viðskipti innlent Telja útboð á heilsurækt í Eyjum sniðið að World Class Viðskipti innlent Framleiðslustöðvunin högg fyrir fyrirtækið og viðskiptavini Neytendur „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Genis á Siglufirði í söluferli: Ekki forsendur fyrir vexti á Íslandi Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Kristrún, það er ljótt að plata“ Viðskipti innlent Þúsundir hringja í Skattinn Viðskipti innlent Spá óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tónabíó opnar á ný Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Vextir hafi sannarlega lækkað en framboðið sé breytt Launahækkanir muni valda meiri stýrivaxtahækkunum Tekur ekki undir fullyrðingar um plat Klofningur nefndarinnar helstu tíðindin og verkalýðnum hótað „Kristrún, það er ljótt að plata“ Stjórnendur svartsýnni en þeir hafa verið frá 2020 Bein útsending: Sitja fyrir svörum vegna vaxtahækkunar Ráðinn sviðsstjóri fyrirtækjasviðs Olís Hækka stýrivexti Genis á Siglufirði í söluferli: Ekki forsendur fyrir vexti á Íslandi Telja útboð á heilsurækt í Eyjum sniðið að World Class Spáir hækkun stýrivaxta í fyrramálið Skiptastjóri Play kærir úrskurð um vanhæfi Spá óbreyttum stýrivöxtum Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Sjá meira