Engin breyting á stýrivöxtum Samúel Karl Ólason skrifar 3. október 2018 09:44 Í yfirlýsingu nefndarinnar segir að útlist sé fyrir meiri hagvöxt en gert var ráð fyrir og að spennan í þjóðarbúskapnum gæti verið meiri en spáð var. Vísir/Hanna
Peningastefnunefnd Seðlabanka íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum. Það þýðir að vextir á sjö daga bundnum innlánum verða áfram 4,25 prósent. Í yfirlýsingu nefndarinnar segir að útlist sé fyrir meiri hagvöxt en gert var ráð fyrir og að spennan í þjóðarbúskapnum gæti verið meiri en spáð var. Þó bendi hátíðnisvísbendingar og kannanir til þess að mögulega muni draga hraðar úr vexti eftirspurnar en áður var talið. Enn fremur segir í yfirlýsingunni að verðbólga hafi aukist á þriðja fjórðungi ársins, eins og spáð var. Verðbólga án húsnæðis hafi einnig aukist og munurinn á milli mælikvarða á verðbólgu með og án húsnæðis hafi minnkað mikið. „Áfram dregur úr árshækkun húsnæðisverðs en á móti vegur að innflutningsverð hefur hækkað umtalsvert að undanförnu. Að hluta endurspeglar það hraða hækkun olíuverðs á alþjóðamarkaði. Gengi krónunnar hefur lækkað frá síðasta fundi peningastefnunefndar og gengisflökt jókst í september m.a. vegna óvissu um fjármögnun eins af stóru flugfélögum landsins,“ segir í yfirlýsingunni. Verðbólguálag á skuldabréfamarkaði hefur hækkað en verðbólguvæntingar hafa haldist óbreyttar frá síðasta fundi peningastefnunefndar. Svo virðist sem verðbólguvæntingar séu nokkuð yfir markmiði og segist nefndin bæði hafa vilja og tæki til að halda verðbólgu við markmið til lengri tíma litið. „Haldi verðbólguvæntingar áfram að hækka og festist í sessi umfram markmið mun það kalla á harðara taumhald peningastefnunnar. Aðrar ákvarðanir, einkum á vinnumarkaði og í ríkisfjármálum, hafa þá áhrif á hversu mikill fórnarkostnaður verður í lægra atvinnustigi.“ Yfirlýsingin endar á því að peningastefnan muni á næstunni ráðast af samspili minni spennu í þjóðarbúskapnum, launaákvarðana og þróunar verðbólgu og verðbólguvæntinga.Kynningarfundurinn vegna yfirlýsingar peningastefnunefndar hefst nú klukkan 10:00.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira