Skoðun

Björt og fögur ásýnd Garðabæjar

Sara Dögg Svanhildardóttir skrifar
Nýútkomin skýrsla SA gefur okkur íbúum Garðabæjar fallega og bjarta ásýnd á sterka fjárhagslega stöðu bæjarins í samanburði við stærstu sveitarfélög landsins. 

Það skiptir gríðarlega miklu máli að haldið sé vel utan um fjármálarekstur sveitarfélaga. En um leið er ekki síður mikilvægt að rýna í hvernig því fjármagni sem slíkt svigrúm gefur er ráðstafað í þágu íbúa.

Betur má ef duga skal

Garðabæjarlistinn hefur bent á að betur má ef duga skal þegar kemur að þjónustu við íbúa. Þetta á við til að mynda í velferðarþjónustu, gagnsæi í stjórnsýslu, upplýsingagjöf og atvinnuuppbyggingu. Þar er því miður ekki að sjá þessa sömu björtu og fögru ásýnd. En skiptir það einhverju máli? Er einhver þörf á fjárfestingu í samfélagslegri ábyrgð sem felur í sér velferð fyrir alla ekki bara valfrelsi fyrir suma?

Við í Garðabæjarlistanum segjum já. Það skiptir höfuðmáli að fjárfesta í samfélagslegri ábyrgð. Það hefur bæði gríðarleg áhrif á hvern einasta íbúa en ekki síður á þróun samfélagsins til lengri tíma. Það skiptir máli í hverju er fjárfest, hvort það eru fjárfestingar til lengri eða skemmri tíma og þá sérstaklega hvort fjárfest er í þágu allra íbúa.

Gerum bara enn betur

Garðabær virðist nefnilega samkvæmt skýrslu SA hafa gott fjárhagslegt svigrúm til þess að forgangsraða betur í þágu íbúa. Til að mynda mætti nýta slíkt svigrúm til að gera betur við barnafjölskyldur. Garðabæjarlistinn vill sjá álögur á barnafjölskyldur lækka, ekki síst til þess að laða fleira ungt fólk aftur inn í bæinn. Við viljum sjá Garðabæ gera það sem einfalt er að gera til þess einmitt að tryggja ungum fjölskyldum möguleikann á búsetu án þess að borga mikið meira fyrir alla þjónustu en annar staðar. Það er ekki sanngjarnt og til lengri tíma litið er það einfaldlega hættuleg stefna. Sveitarfélagið má ekki láta fjárfestingu í innviðum líða fyrir fjárhagslega góða útkomu eina saman. Þannig tapar samfélagið allt í stað þess að græða.

Lægsta útsvarið og lægstu fasteignaskattarnir en hvað svo?

Þannig er að útsvar og fasteignaskattur eru lægst í Garðabæ en á móti kemur að íbúar borga meira fyrir til dæmis leikskóla, fæði barna og ungmenna og íþróttaiðkun barna. Á sama tíma er ekki verið að fjárfesta til framtíðar í velferð, engin framtíðarsýn er varðar búsetuúrræði fyrir fatlaða einstaklinga og félagslegt húsnæði ekki til. Engin plön eru fyrir hendi í þessum málaflokkum til framtíðar þrátt fyrir fjárhagslegt svigrúm og fallega ásýnd og bjarta. Það sem gerir þetta enn verra er að ef viðurkennda leiðin er að bjóða ákveðnum hópum eins og fötluðum upp á verri þjónustu og láta aðra líkt og foreldra með börn á leikskólum borga meira til að fá góða þjónustu.

Hlutverk sveitarfélaga

Meginhlutverk sveitarfélaga er að tryggja góða grunnþjónustu fyrir alla. Þess vegna er ekki nóg að stæra sig af lægsta útsvarinu og lægsta fasteignskattinum á hvern íbúa þegar það er sá tekjustofn sem er ætlað að tryggja góða lögbundna grunnþjónustu. Þessir þættir verða að fara saman. Þegar grunnþjónustu við íbúa í bænum er ekki sinnt sem skyldi eru fögur orð um sterka fjárhagsstöðu Garðabæjar innantóm og villandi. 

Gerum Garðabæ fyrir alla. Forgangsröðum í mennsku og fjárfestum með hagsmuni allra íbúa að leiðarljósi. 

Kjósum Garðabæjarlistann!

Höfundur er oddviti Garðabæjarlistans í Garðabæ




Skoðun

Sjá meira


×