Sögufrægar fasteignir RR hótela til sölu Kristinn Ingi Jónsson skrifar 17. maí 2018 06:00 Dótturfélag Íslenskrar fjárfestingar festi kaup á húsi Félags bókagerðarmanna við Hverfisgötu 21, einu af elstu steinsteyptu húsunum í Reykjavík, haustið 2012 og breytti því í íbúðahótel. Félagið er nú til sölu. Vísir/stefán
Fjárfestingarfélagið Íslensk fjárfesting, í eigu Arnars Þórissonar og Þóris Kjartanssonar, hefur sett fasteignafélagið RR fasteignir, sem á sjö sögufrægar byggingar í miðbæ Reykjavíkur, í formlegt söluferli. Eignir félagsins voru metnar á ríflega 2,7 milljarða króna í lok árs 2016. Þórir, sem er stjórnarformaður RR fasteigna, segist í samtali við Fréttablaðið búast við því að söluferlinu ljúki í sumar. Það er fyrirtækjaráðgjöf Arion banka sem er ráðgjafi seljanda í ferlinu. Umræddar byggingar, sem eru við Hverfisgötu, Lindargötu og Veghúsastíg, eru leigðar til hótelfélagsins RR hótela, sem er auk þess í eigu Íslenskrar fjárfestingar, en félagið rekur meðal annars íbúðahótel undir nafninu Reykjavík Residence. Alls reka RR hótel 47 íbúðir í sex húsum og þegar framkvæmdum við Hverfisgötu 78 lýkur í haust verða hótelíbúðirnar samtals 63 í átta húsum. Þórir segir húsin hafa öll verið tekin í gegn frá grunni og þeim fengið nýtt hlutverk sem hágæðaíbúðir. „Við höfum samt byggt þau upp í upprunalegri mynd og lagt áherslu á að vernda og miðla sögu húsanna. Að jafnaði er götumyndin vernduð og í sumum tilfellum sjálf húsin og því höfum við þurft að vinna náið með borgaryfirvöldum og húsafriðunarnefnd. Það er stór þáttur í þessu að allir séu sáttir,“ nefnir hann.Þórir Kjartansson, framkvæmdastjóri Íslenskrar fjárfestingarÁ meðal eigna RR fasteigna eru hús Félags bókagerðarmanna við Hverfisgötu 21, sem er eitt af elstu steinsteyptu húsum borgarinnar, byggt árið 1912, 104 ára gamalt steinhús við Hverfisgötu 45, 112 ára gamalt hús við Lindargötu 11, Bókfellshúsið á Hverfisgötu 78 og Bergshús við Veghúsastíg 9. Þórir segir forsvarsmenn félagsins fremur líta á það sem fasteignaþróunarfélag heldur en hefðbundið fasteignafélag sem eigi stórt safn eigna með langtímaleigusamninga, líkt og til dæmis stóru fasteignafélögin sem skráð eru á markað. „Við vinnum frekar í því að þróa og búa til flott fasteignasöfn og setja þau síðan í hendurnar á einhverjum sem er reiðubúinn til þess að reka þau. Við höfum byggt upp flott safn með þekktum eignum í miðborginni og er nú komið að þeim tímapunkti að við viljum selja það.“ RR hótel var skipt upp í tvö félög um áramótin 2016 og 2017. Annars vegar rekstrarfélagið RR hótel ehf. sem heldur utan um rekstur hótelíbúðanna og hins vegar fasteignafélagið RR fasteignir ehf. sem á eignirnar sem leigðar eru til RR hótela en að sögn Þóris var skiptingin fyrsta skrefið í að gera fasteignafélag hótelsins hæft til sölu. Þórir segir fasteignasafnið geta verið góða og skemmtilega viðbót í eignasöfn fasteignafélaga og fleiri fasteignaeigenda, enda sé um að ræða þekktar eignir með mikla sögu sem hafi auk þess allar verið teknar í gegn. „Þar að auki er þetta íbúðahótel þannig að ef allt færi á verri veg í hótelbransanum eftir einhvern árafjölda væri hægt að breyta hlutverki þess og nýta íbúðirnar. Hótel verður hins vegar alltaf hótel.“ Samkvæmt ársskýrslu Íslenskrar fjárfestingar voru RR hótel rekin með um 97 prósenta herbergjanýtingu í fyrra. Framkvæmdum við Lindargötu 11 og Veghúsastíg 9a lauk á árinu og bættust þá tuttugu hótelíbúðir við eignasafnið. Jafnframt hófust framkvæmdir við Hverfisgötu 78 en þar er verið að byggja nýtt hús á baklóð ásamt því að núverandi hús verður endurbætt. Gerir fjárfestingafélagið ráð fyrir áframhaldandi vexti hjá RR hótelum á þessu ári. Hagnaður Íslenskrar fjárfestingar nam 336 milljónum króna á síðasta ári og dróst saman um 369 milljónir frá fyrra ári. Í ársskýrslunni segir að helstu skýringarnar séu þær að rekstur stærstu dótturfélaganna hafi verið undir væntingum auk þess sem nokkur þróunarverkefni séu „enn að sanna sig“ og skili því tapi í samstæðunni. Forsvarsmenn félagsins búast þó við miklum hagnaði á næstu árum vegna fasteignaverkefna sem eru í söluferli.
Birtist í Fréttablaðinu Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Viðskipti innlent Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Viðskipti innlent Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Furstadæmin yfirgefa OPEC Viðskipti erlent Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Atvinnulíf Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Afkomuöryggi allan hringinn með FLM Samstarf Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Fleiri fréttir Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sjá meira