Tryggt sér fjármögnun upp á ríflega 15 milljarða Kristinn Ingi Jónsson skrifar 2. maí 2018 08:00 Haukur Harðason, stjórnarformaður Arctic Green Energy, sést hér til vinstri. AGE
Arctic Green Energy, íslenskt félag sem var stofnað til þess að þróa og reka umhverfisvænar jarðhitaveitur í Asíu, hefur samið við kínversku fjárfestingafélögin CITIC Capital og China Everbright og Þróunarbanka Asíu um fjármögnun upp á 150 milljónir dala eða sem jafngildir ríflega 15,1 milljarði króna. Fjármagnið verður nýtt til þess að fjármagna frekari vöxt félagsins og endurfjármagna eldri skuldir. CITIC Capital, sem hefur verið hluthafi í Arctic Green Energy frá árinu 2015, nýtti sér kauprétt að hlutum að virði 30 milljónir dala í félaginu en China Everbright keypti hluti og skuldabréf útgefið af íslenska félaginu fyrir samtals 70 milljónir dala. Þá veitti Þróunarbanki Asíu félaginu 50 milljóna dala lán. Haukur Harðarson, stjórnarformaður og stofnandi Arctic Green Energy, verður áfram stærsti einstaki hluthafi félagsins en kínversku fjárfestingafélögin munu fara með minnihluta hlutafjár. Hann segir í tilkynningu á vef félagsins að fjármögnunin sé mikilvægt skref. China Everbright muni breikka hluthafahóp félagsins og styrkja tengsl þess enn frekar við Kína. Tilkynnt var um það í mars síðstliðnum að félögin Arctic Green Energy og Sinopec Green Energy Geothermal hefðu tryggt sér fjármögnun upp á 250 milljónir dala frá Þróunarbanka Asíu til áframhaldandi vaxtar í Kína, en verkefni félaganna þar snúa að því að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis á borð við kol, olíu og gas til húshitunar og loftkælingar. Undir merkjum Sinopec Green Energy munu félögin tvö koma að uppbyggingu eins stærsta jarðhitaverkefnis sögunnar í nýrri risaborg í Kína.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Sjá meira