Swedbank fjárfestir fyrir hundruð milljóna í Meniga Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 24. apríl 2018 11:09 Georg Lúðvíksson er forstjóri og einn af stofnendum Meniga. meniga
Sænski viðskiptabankinn Swedbank hefur fjárfest í íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu Meniga fyrir þrjár milljónir evra eða sem samsvarar 371 milljón íslenskra króna. Þá hefur bankinn einnig hafið innleiðingu á snjallsíma-og netbankalausnum Meniga til þess að bjóða viðskiptavinum bankans persónulegri notendaupplifun, eins og það er orðað í tilkynningu. „Við erum mjög ánægð að bjóða Swedbank velkomin sem fjárfesti í Meniga og hlökkum til að vinna með bankanum til að endurhanna snjallsíma- og netbankaumhverfi bankans. Við erum virkilega spennt yfir þeim metnaði sem Swedbank hefur sýnt til að bjóða viðskiptavinum sínum betri þjónustu og notendaupplifun. Við teljum það sýna mikið traust í Meniga að Swedbank hafi ákveðið að fjárfesta í fyrirtækinu ásamt því að velja okkur sem réttu lausnina fyrir bankann,“ er haft eftir Georg Lúðvíkssyni, forstjóra og einum af stofnendum Meniga, í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. Meniga var stofnað árið 2009 og eru starfsmenn fyrirtækisins í dag um 100 talsins. Hefur hugbúnaður Meniga verið innleiddur hjá yfir 70 fjármálastofnunum og er hann aðgengilegur yfir 50 milljón manns í 23 löndum.
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira