Tíu tekjuhæstu á Airbnb veltu 1.300 milljónum Kristinn Ingi Jónsson skrifar 11. apríl 2018 06:00 Airbnb er eina gistiþjónusta landsins sem aukið hefur hlutdeild sína á markaðnum.
Hátt í 80 prósent af fjölgun gistinátta á síðasta ári má rekja til fjölgunar gistinátta á leiguvefnum Airbnb, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Íslandsbanka um stöðu ferðaþjónustunnar sem kemur út í dag. Þróist gistiþjónustumarkaðurinn með sama hætti og verið hefur er útlit fyrir að leigusalar á Airbnb selji álíka margar, ef ekki fleiri, gistinætur en öll hótel landsins til samans á þessu ári. Í skýrslunni segir að alls hafi um 11,6 milljónir gistinátta verið seldar í fyrra. Þar af hafi næstflestar, eða um 3,2 milljónir gistinátta, verið seldar í gegnum Airbnb en til samanburðar seldu hótel landsins um 4,3 milljónir gistinátta. Leiguvefurinn er því orðinn næstumfangsmesta gistiþjónusta landsins, með 30 prósenta hlutdeild, og um þrisvar sinnum stærri en sú þriðja umfangsmesta, gistiheimilin. Rakið er í skýrslunni að gistinóttum hafi fjölgað um 2,1 milljón á síðasta ári en af þeirri fjölgun hafi Airbnb tekið til sín 76 prósenta hlutdeild. Fjölgaði seldum gistinóttum á vegum Airbnb um 1,6 milljónir á árinu.Ferðamönnum fjölgað hraðar en hótelum Elvar Orri Hreinsson, sérfræðingur hjá Samskiptum og greiningu hjá Íslandsbanka, bendir á, til marks um mikinn uppgang Airbnb hér á landi, að allar tegundir gististaða hafi misst hlutdeild til Airbnb frá árinu 2015. „Airbnb er eini aðilinn á gistiþjónustumarkaðinum sem hefur verið að auka við hlutdeild sína. Ástæðan er sú að leiguvefurinn hefur verið að sópa til sín langstærstum hluta af stækkun kökunnar á markaðinum. Rótin að þeirri þróun er sú að hótelin hafa ekki aukið framboð sitt í takti við fjölgun ferðamanna á undanförnum árum. Það á sér fullkomlega eðlilegar skýringar þar sem hótelverkefni eru langtímaverkefni og er ekki við því að búast að hótelin auki framboð sitt í takti við fjölgun ferðamanna þegar hún er eins hröð og hún hefur verið.“Elvar Orri HreinssonÍslandsbankilvar Orri segir að þannig hafi myndast umframeftirspurn eftir gistingu á landinu og Airbnb hafi mætt þeirri eftirspurn. „Það má því færa rök fyrir því að Airbnb hafi átt ríkan þátt í þeirri velmegun sem ferðaþjónustan hefur skapað grundvöll fyrir hér á landi, enda hefðum við ekki getað tekið á móti öllum þessum fjölda ferðamanna ef ekki hefði verið fyrir tilkomu Airbnb.“ Í skýrslu Íslandsbanka kemur auk þess fram að tekjur leigusala, sem nota Airbnb hér á landi, hafi numið 19,4 milljörðum króna í fyrra og aukist um 109 prósent frá fyrra ári. Tekjuhæsti leigusali síðasta árs velti samtals 230 milljónum króna og bauð upp á 46 útleigurými, að því er segir í skýrslunni, en samtals veltu tíu tekjuhæstu leigusalarnir 1,3 milljörðum króna. Sá leigusali sem var með hvað mestar tekjur á hvert útleigurými velti rúmum 12 milljónum króna á hvert rými yfir 12 mánaða tímabil. Jafngildir það rúmri einni milljón króna á hvert rými í hverjum mánuði. „Það er því ljóst að leigusalar geta aflað umtalsvert meiri tekna með því að leigja erlendum ferðamönnum í gegnum Airbnb en með því að leigja á hefðbundnum leigumarkaði. Hefur þessi hvati leitt til þess að íbúðir á hefðbundnum leigumarkaði eru færri en ella sem veldur að öðru óbreyttu hækkunarþrýstingi á leiguverð,“ segir í skýrslunni. Í skýrslu Íslandsbanka er auk þess rakið að um 93 prósent fyrirtækja í ferðaþjónustu hafi skilað einungis um 19 prósentum af heildarrekstrartekjum atvinnugreinarinnar árið 2016. Greinin einkennist þannig af fáum stórum fyrirtækjum og mörgum litlum. Á sama ári námu rekstrartekjur ferðaþjónustunnar 385 milljörðum króna og þar af voru rekstrartekjur tíu stærstu fyrirtækjanna 208 milljarðar eða sem nemur 54 prósentum af heildarrekstrartekjum greinarinnar. Þá voru aðeins tvö fyrirtæki, flugfélögin Icelandair og Wow air, með ríflega þriðjung heildarrekstrartekna í greininni á árinu.
Birtist í Fréttablaðinu Ferðamennska á Íslandi Tengdar fréttir Ekki útlit fyrir að íbúðaverð lækki á næstu misserum Hækkun íbúðaverðs á milli ára minni nú en á síðasta ári 25. mars 2018 19:00 Fleiri tekjuháir nýta sér Airbnb Tekjuháir ferðamenn nýta sér leiguvefinn Airbnb í síauknum mæli. Fyrir fáeinum árum gistu aðallega tekjulægri ferðamenn í Airbnb-íbúðum. Viðsnúningurinn hefur verið hraður, að sögn hagfræðings. 5. apríl 2018 06:00 Fjórðungsálag á Airbnb-tekjur Kona þarf að greiða 25 prósenta álag á tekjur af útleigu íbúðar á Airbnb eftir að hún gaf tekjurnar ranglega upp til skatts. 5. febrúar 2018 07:00 Mest lesið Arnar Þór og Unnur Lilja skipta búi Play Viðskipti innlent Segir ekki honum að kenna að Play hafi farið á hausinn Viðskipti innlent Leik lokið hjá Play Viðskipti innlent „Það er svo langt síðan að við höfðum ekki trú á Play“ Viðskipti innlent Hrun í makríl og kolmunna Viðskipti innlent Kalla ráðherra og forstjóra Samgöngustofu fyrir samgöngunefnd Viðskipti innlent Fallið frá kröfum um neyðarfjarskipti á hálendinu Viðskipti innlent Play með sex prósent flugsæta til og frá landinu Viðskipti innlent Hækkun flugfargjalda muni skila sér í meiri verðbólgu Viðskipti innlent „Skrifast ekki á okkur að það hafi farið eins og er farið“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Snaps teygir anga sína út á Hlemm „Það er svo langt síðan að við höfðum ekki trú á Play“ Arnar Þór og Unnur Lilja skipta búi Play Bændaferðir færa sig í skemmtiferðasiglingar Fallið frá kröfum um neyðarfjarskipti á hálendinu Play með sex prósent flugsæta til og frá landinu Hrun í makríl og kolmunna Fall Play áfall en að einhverju leyti fyrirséð Segir ekki honum að kenna að Play hafi farið á hausinn Eðlilegt ef farið verður yfir eftirlit með flugfélögum Höggið á íslenska ferðaþjónustu ætti að vera takmarkað Þjóðarskútan sé „vel í stakk búin til að sigla milli skers og báru í úfnum sjó“ Gjaldþrotaskiptabeiðni Play tekin fyrir í héraðsdómi Atvinnuleysi 5,3 prósent í ágúst Kalla ráðherra og forstjóra Samgöngustofu fyrir samgöngunefnd Hækkun flugfargjalda muni skila sér í meiri verðbólgu Leik lokið hjá Play „Skrifast ekki á okkur að það hafi farið eins og er farið“ Icelandair geti ekki svarað fyrir orðræðuna Play kvartaði undan Icelandair þremur vikum fyrir gjaldþrot Loka Kristjánsbakaríi Hætta rekstri tveggja skipa í hagræðingarskyni Engin ást eftir milli flugmanna og stjórnenda Sömu miðarnir kosti nú 370 þúsund Koma fólkinu heim með fimmtán milljóna króna leiguflugi Fargjöld ekki hækkuð af ásettu ráði Samgöngustofa fundaði nýlega með Play og fékk gögn frá KPMG „Við erum ekki með öll eggin í sömu körfu“ „Hver fyrir sig hvað það varðar“ Farþegar Play í Keflavík klóra sér í kollinum Sjá meira
Ekki útlit fyrir að íbúðaverð lækki á næstu misserum Hækkun íbúðaverðs á milli ára minni nú en á síðasta ári 25. mars 2018 19:00
Fleiri tekjuháir nýta sér Airbnb Tekjuháir ferðamenn nýta sér leiguvefinn Airbnb í síauknum mæli. Fyrir fáeinum árum gistu aðallega tekjulægri ferðamenn í Airbnb-íbúðum. Viðsnúningurinn hefur verið hraður, að sögn hagfræðings. 5. apríl 2018 06:00
Fjórðungsálag á Airbnb-tekjur Kona þarf að greiða 25 prósenta álag á tekjur af útleigu íbúðar á Airbnb eftir að hún gaf tekjurnar ranglega upp til skatts. 5. febrúar 2018 07:00