Heildarkortavelta Íslendinga jókst áfram í desember síðastliðnum og nemur aukningin 7 prósent á milli ára á föstu gengi og verðlagi. Það hægir því aðeins á vextinum í desember, en á fjórða ársfjórðungi nam hækkunin 10,1 prósenti og er það nokkuð umfram einkaneyslu. Upplýsingarnar birtir Greiningardeild Arion banka.
Þá segir að ferðamenn hafi valdið vonbrigðum, bæði hafi færri komið en gert var ráð fyrir og var kortavelta þeirra minni en áður hefur tíðkast. Það má því búast við slökum viðskiptajöfnuði á fjórða ársfjórðungi og útilokar greiningardeildin ekki að viðskiptahalli verði raunin. Það væri þá í fyrsta skipti á ársfjórðungi frá árinu 2014.
Ferðamannaþjónustan komin á táningsaldurinn
Tölur frá Ferðamálastofunni um brottfarir erlendra farþega um Keflavíkurflugvöll í desember gefa til kynna að fjölgunin hafi verið 8,4 prósent, en það er minnsti vöxtur á einum mánuði í sjö ár. Samtals fjölgaði erlendum ferðamönnum hér á landi um 24 prósent milli ára, en árið á undan því var fjölgunin 40 prósent.
Greiningardeildin líkir uppgangi ferðaþjónustunnar við þroska einstaklings. Einstaklingurinn sé nú kominn á táningsaldurinn og fer því að hægja á vexti hans. Framundan sé þroskaskeið þar sem „álkulegur líkaminn tekur að samsvara sér betur,“ segir í greiningunni.
Hægðist mjög á fjölgun ferðamanna
Daníel Freyr Birkisson skrifar

Mest lesið

Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum
Viðskipti innlent

Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað
Viðskipti innlent

Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað?
Viðskipti innlent



Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures
Viðskipti innlent

Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar
Viðskipti innlent

Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér
Viðskipti innlent

Íbúðum í byggingu fækkar
Viðskipti innlent

Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn
Viðskipti innlent