Læknirinn, kýrin og kálfurinn Árni Stefán Árnason skrifar 23. nóvember 2017 13:28 Árlegt áreiti matvælaframleiðenda með afurðir úr búfjáreldi fyrir manneldi eykst nú í auglýsingum á sjónvarpsskjám og í öðrum miðlum. Jólahátíðin er handan við hornið og á þeim tíma t.d. þykir sá ósiður góður siður, að leggja sér til munns kjötbita af föllnu dýri. Síðan tekur Þorrabröltið við og svo koll af kolli. Alltaf kemur nýtt tilefni, nýjar kjötátshvattningar frá þeim, sem græða á kjötsölu. Öllum tólum til, að töfra fram löngun neytenda er beitt til að lokka hann að kjötborðinu. Fá að hann til að taka ákvörðun um að leggja dýrin sér til munns. Aðal galdrakarlinn nú er brosmildur og vinalegur læknir, sem ég lét síðast í gærkveldi pirra mig á skjánum. ,,Læknirinn í eldhúsinu“ en svo er þessi vinsæli læknir gjarnan nefndur, sem birtist reglulega á skjánum og lofar ágæti íslensks búfjáreldis. Í gær og oft áður með hvatningu um að landinn auki smjörneyslu sína. Í kjölfarið kom áróður frá SS um hamborgarhryggi, hryggi úr svínum sem alin eru við aðstæður, sem eru mjög gagnrýni verðar. Er farið illa með kýr í mjólkurframleiðsu? Fáir, en þó ætíð fleiri, eru meðvitaðir um þá sögu, sem hver dropi af mjólk hefur að geyma. Fyrir þá, sem ekki vita það upplýsist hér með að kýr eru sæddar ár eftir ár til þess að ala kálfa. Stuttu fyrir burð fer kýrin að framleiða mjólk, sem hana hlakkar eflaust til að leyfa kálfi sínum að sjúga af spenum sínum. Ég segi, að hana hlakki til og rökstyð það t.d. með því að staðfest er í dýravelferðarlögum að dýr séu skyni gæddir einstaklingar. Engum hefur tekist að sýna fram á að dýr kunni ekki að gleðjast eða hlakka til einhvers. Þvert á móti er hægt að færa sterk rök fyrir því að kýr bæði hlakki til einhvers og kunni að gleðjast. Þegar kýrin hefur fætt kálf sinn tekur bóndinn kálfinn frá móður sinni (illa gert). Margar frásagnir eru um að kýr og kálfur kalli eftir hvort öðru við aðskilnaðinn. Sumir hafa lýst því sem örvæntingarfullu öskri lýkt og búast mætti við frá móður hvers ungabarn er tekið af. Mjólk kálfsins er síðan notuð til smjörframleiðslunnar, sem læknirin hvetur til ,,meiri“ neyslu á og beinir vinsamlegu brosi sínu beint í augu þess sem á horfið. Auglýsingarnar eru úthugsaðar og mjög vandaðar. Dalaostaauglýsingin er mjög gott dæmi. Útkoman, osturinn er hins vegar óvönduð framkoma við mjólkurkýr. Að baki smjörsins er saga, sem ég held að fáir myndu vilja kenna sig við. Saga þjáningar kúar og kálfs. Það er ekki til eftirbreytni að leggja illri meðferð dýra lið. Mjólkurkú lifir að jafnaði miklu skemur en einstaklingar af sömu tegund, sem þurfa ekki að þola þetta linnulausa inngrip í líf þeirra. Okkur líður líka illa Mér og öðrum, sem hafna dýraáti líður illa þegar kjötauglýsingar birtast í landsmiðlunum því flest, sem valið hafa leið grænkerans eða veganismans vitum forsögu þeirra dýra, sem fallið hafa í sláturhúsinu. Verra er þó, að yfirgnæfandi líkur eru á því að dýrið sem gaf, óviljugt og óspurt, af sér kjötbitann leið öllu verr í langan tíma. Því er okkur ei vorkunn. Beinum orkunni í að tala rödd dýranna. Þessi pistill er slík viðleitni. Aðventuáróðurinn Kjötframleiðendur munu á næstu vikum leggja aukin þunga í að keppast um hylli kjötætunnar. Það er hennar að eiga samtal við samvisku sína: hvað sé rétt og hvað sé rangt í þessum efnum. Ég vil ekki hafa það á minni samvisku að dýr hafi þurft að ljúka ævi sinni svo ég geti glatt bragðlauka mína. Það er siðferðislega óverjandi fyrir mig. Maðurinn er auk þess ekki skapaður sem kjötæta. Auðvelt er að sýna fram á það með því að rannsaka meltingarveg hans og meltingarlíffæri. Gild röksemd úr ritningunum Gild röksemd úr ritningunum kristninni segir eftir að Guð hafði skapað manninn: Sjá, ég gef ykkur alls konar sáðberandi jurtir á allri jörðinni og alls konar tré, sem bera ávöxtu með sæði í. Það sé ykkur til fæðu. ( fyrsta Mósebók) – Ég er ekki bókstafstrúarmaður en hef mjög gaman af því að velta viðurkenndum texta fyrir mér. Ég get ekki leynt þeirri skoðun minni að framangreindur texti er sannfærandi. Þarna eru óumdeilanlega skýr skilaboð til kristinna. Verði þér að góðu kæri lesandi í hinum fagra heimi grænkerans/veganismans. Sá lífstíll stuðlar að sátt við umhverfið, vernd lýðheilsu og hefur áhrif á ógnandi loftslagsbreytingar til batnaðar svo eitthvað sé nefnt. Er þetta ekki eftirsóknarvert? Höfundur er dýraverndarlögfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Árni Stefán Árnason Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar