Þjóðargrafreitur sem ekki varð Sigurður Helgi Pálmason skrifar 2. júní 2026 08:02 Fyrir nokkru barst Þingvallanefnd erindi þar sem óskað var eftir leyfi til að taka sýni úr beinaleifum Jónasar Hallgrímssonar, sem hvílir í þjóðargrafreitnum á Þingvöllum, með DNA rannsókn. Eftir að jarðneskar leifar Jónasar voru fluttar til landsins komu upp efasemdir um að þær væru í raun af honum. Þingvallanefnd taldi að ekki væri hægt að heimila slíka rannsókn nema að undangengnum dómsúrskurði. Málið vakti þó athygli nefndarinnar á stöðu þjóðargrafreitsins sjálfs og varð tilefni umræðu um tilgang hans, sögu og framtíð. Í framhaldi af þeirri umræðu lagði ég til, sem formaður Þingvallanefndar, að skipaður yrði sérstakur starfshópur um framtíð þjóðargrafreitsins. Hlutverk hans verður að fara yfir stöðu grafreitsins í heild, sögulegt hlutverk hans og ástand, auk þess að leggja fram tillögur að framtíðarsýn. Meðal annars verður skoðað hvort núverandi fyrirkomulag þjóni tilgangi sínum og hvernig megi skapa þjóðskáldunum virðulegri, sýnilegri og hlýrri umgjörð. Þegar þjóðargrafreiturinn var stofnaður árið 1940 var ætlunin að þar yrði helgasti minningarstaður íslensku þjóðarinnar. Þar gæti þjóðin sameinast um að heiðra þá sem lagt hefðu hvað mest af mörkum til ræktunar og varðveislu íslenskrar tungu, menningar, sögu og sjálfstæðisvitundar. Hugmyndin var sú að á sjálfum Þingvöllum, í hjarta íslenskrar sögu, yrði grafreitur þeirra sem þjóðin mæti mest. Upphaf þessarar hugmyndar má rekja til stjórnmálaskörungsins Jónasar Jónssonar frá Hriflu, sem fyrstur setti hana fram þegar hann var formaður Þingvallanefndar. Jónas sá fyrir sér að grafreiturinn gegndi svipuðu hlutverki og Westminster Abbey í Bretlandi, þar sem mörg helstu stórmenni breskrar sögu hvíla saman á einum stað. Í hans huga áttu Þingvellir ekki aðeins að vera sögustaður heldur lifandi helgistaður þjóðarinnar, staður þar sem saga, menning og sjálfstæðisvitund mættust. Einar Benediktsson var fyrstur til að vera jarðsettur í þjóðargrafreit Íslendinga árið 1940. Sex árum síðar voru bein þjóðskáldsins Jónasar Hallgrímssonar flutt heim frá Danmörku og lögð þar til hinstu hvílu við mikla athöfn. Í dag vita þó fæstir þeirra sem heimsækja Þingvelli af tilvist grafreitsins. Sumir kalla hann jafnvel í hálfkæringi „þyrlupallinn“. Það segir meira en mörg orð um hvernig til hefur tekist. Þjóðargrafreitur sem átti að verða æðsti virðingarvottur þjóðarinnar við látnar þjóðhetjur er að mestu fallinn í gleymsku. Fáir heimsækja hann og enn færri staldra þar við. Ekki hafa heldur skapast neinar hefðir eða opinberar athafnir til að heiðra minningu þeirra sem þar hvíla. Á þjóðhátíðardegi Íslendinga er lagður blómsveigur á leiði Jóns Sigurðssonar, en á degi íslenskrar tungu, þegar þjóðin minnist Jónasar Hallgrímssonar og arfleifðar hans, hafa stjórnvöld aldrei með formlegum hætti lagt blóm á leiði hans. Skáldið sem átti svo ríkan þátt í mótun íslenskrar tungu og þjóðernisvitundar hvílir því að mestu á gleymdum stað. Ástand þjóðargrafreitsins kallar einnig á umtalsvert viðhald. Veður og tími hafa sett mark sitt á svæðið og hingað til hefur eingöngu verið sinnt einföldu viðhaldi, svo sem grasslætti og minni háttar lagfæringum. Umgjörðin er hvorki reisuleg né aðlaðandi og stenst engan veginn þær væntingar sem gera má til þjóðargrafreits. Þetta eru ekki aðeins leiði tveggja einstaklinga heldur minnisvarði um framlag þeirra til sögu þjóðarinnar, menningar, skáldskapar og sjálfstæðisbaráttu. Það er von Þingvallanefndar að með vinnu starfshópsins verði hægt að móta skýra framtíðarsýn fyrir þjóðargrafreitinn og færa honum það hlutverk sem honum var upphaflega ætlað. Um leið þarf að tryggja að minningu þeirra þjóðskálda sem þar hvíla verði sýndur sá sómi sem þau eiga skilið. Þjóðargrafreiturinn á Þingvöllum á ekki að vera gleymdur staður við hlið gönguleiðar, heldur lifandi minnisvarði um þá sem mótuðu íslenska þjóð og íslenska tungu. Höfundur er þingmaður Flokks fólksins og formaður Þingvallanefndar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurður Helgi Pálmason Þingvellir Þjóðgarðar Kirkjugarðar Jarðneskar leifar Jónasar Hallgrímssonar Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar