Jarðhiti sem samkeppnisforskot Helga Kristín Jóhannsdóttir skrifar 1. júní 2026 15:32 Af hverju orkudrifin verkefni horfa til Hellisheiðar Hvar er best að byggja upp starfsemi sem byggir á orku? Í heimi þar sem samkeppni um hreina orku, innviði og hæft starfsfólk fer vaxandi skiptir staðsetning sífellt meira máli. Fyrirtæki sem reiða sig á orku, varma, vatn eða aðrar náttúruauðlindir þurfa aðgang að innviðum, hraðri uppbyggingu og rekstrarumhverfi sem styður vöxt til lengri tíma. Á Hellisheiði hefur á undanförnum árum orðið til umhverfi þar sem þessir þættir koma saman á einstakan hátt. Þar býður Jarðhitagarðurinn fyrirtækjum aðgang að endurnýjanlegri raforku, varmaorku á mismunandi hitastigum, heitu og köldu ferskvatni, jarðhitavökva og steinefnum auk sameiginlegra innviða og skipulagðra lóða til uppbyggingar. Sérstaða svæðisins er að þessar auðlindir eru aðgengilegar á einum stað. Jarðhitagarðurinn hefur verið byggður upp við Hellisheiðarvirkjun Orku náttúrunnar með það að markmiði að skapa vettvang þar sem fyrirtæki geta nýtt endurnýjanlegar auðlindir til nýsköpunar, rannsókna og atvinnuuppbyggingar. Jafnframt er lögð áhersla á að nýta auðlindir svæðisins sem best með hringrásarhugsun að leiðarljósi og skapa þar með aukin verðmæti. Fyrir fyrirtæki sem undirbúa ný verkefni skiptir miklu máli að geta unnið með einum samstarfsaðila sem hefur yfirsýn yfir auðlindir, innviði og þróunarmöguleika svæðisins. Það einfaldar undirbúning, styttir leiðina frá hugmynd að framkvæmd og eykur fyrirsjáanleika í uppbyggingu og rekstri. Styttri leið frá hugmynd að rekstri Fyrir mörg fyrirtæki er stærsta áskorunin ekki hugmyndin sjálf heldur að koma henni í framkvæmd. Á Hellisheiði eru lykilforsendur eins og orka, varmi, vatn og uppbyggingarsvæði þegar til staðar. Það styttir leiðina frá fjárfestingarákvörðun til rekstrar, dregur úr áhættu og gerir fyrirtækjum kleift að einbeita sér að þróun lausna og uppbyggingu starfsemi. Þar sem orka og þekking mætast Jarðhitagarðurinn er staðsettur í um tuttugu mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík. Nálægðin við höfuðborgarsvæðið veitir fyrirtækjum aðgang að sérhæfðu vinnuafli, rannsóknastofnunum, háskólasamfélagi og öflugu nýsköpunarumhverfi. Þessi samsetning er sjaldgæf á alþjóðlegan mælikvarða. Á mörgum stöðum þar sem aðgangur að orku og auðlindum er mikill er langt í rannsóknir, sérfræðiþekkingu og vinnuafl. Á Hellisheiði fara þessir þættir saman og skapa forsendur fyrir hraðari þróun og auknu samstarfi. Vistkerfi sem skapar ný tækifæri VAXA og Climeworks eru dæmi um fyrirtæki sem þróuðu lausnir sínar í nánu samspili við auðlindir svæðisins og byggðu upp starfsemi sem hefur vakið alþjóðlega athygli. Sameiginlegt með þessum fyrirtækjum er að þau fengu tækifæri til að þróa hugmyndir sínar í umhverfi þar sem aðgangur að orku, þekkingu og samstarfi var til staðar. Með tímanum hefur orðið til vistkerfi þar sem fyrirtæki njóta ekki aðeins auðlindanna heldur einnig tengslanets, reynslu og þekkingar sem hefur byggst upp á svæðinu. Næsti áfangi: Frá tilraun til vaxtar Reynslan sýnir að nýjar hugmyndir þurfa svigrúm til að þróast áður en þær eru tilbúnar til uppbyggingar á stærri skala. Frá og með árinu 2027 verður aukin áhersla lögð á að skapa fyrirtækjum aðstöðu til að prófa nýjar hugmyndir og tæknilausnir við raunverulegar aðstæður. Þar mun Glóð gegna lykilhlutverki. Glóð er ný miðstöð nýsköpunar og rannsókna þar sem frumkvöðlar, fyrirtæki og háskólar geta þróað og sannreynt lausnir sem byggja á orku og auðlindum svæðisins. Markmiðið er að fyrirtæki geti farið alla leið á einum stað,frá fyrstu hugmynd til atvinnustarfsemi á stærri skala. Að byggja samfélag um nýsköpun og auðlindanýtingu Uppbyggingin á Hellisheiði snýst ekki eingöngu um að skapa aðstöðu fyrir einstök fyrirtæki. Markmiðið er að byggja upp samfélag þar sem fyrirtæki, frumkvöðlar, rannsóknaraðilar og sérfræðingar vinna saman og skapa ný tækifæri á grunni endurnýjanlegra auðlinda. Fá svæði í heiminum bjóða upp á jafn sterka samsetningu af endurnýjanlegri orku, fjölbreyttum auðlindastraumum, tilbúnum uppbyggingarsvæðum, aðgengi að sérhæfðu vinnuafli og virku samfélagi fyrirtækja og rannsóknaaðila. Þegar aðgangur að orku, vatni, þekkingu og innviðum fer saman á einum stað skapast aðstæður sem erfitt er að endurskapa annars staðar. Þar geta hugmyndir þróast í verkefni, verkefni í fyrirtæki og fyrirtæki í alþjóðlega starfsemi. Markmiðið er að fyrirtæki geti vaxið á sama stað, frá fyrstu hugmynd til uppbyggingar á stærri skala. Það er það sem gerir jarðhitann að samkeppnisforskoti. Fjöldi íslenskra sérfræðinga í jarðhita og nýtingu hans verður á World Geothermal Congress 2026 í Calgary í Kanada í næstu viku. WGC er haldin á þriggja ára fresti og þar koma saman helstu sérfræðingar, vísindafólk og fulltrúar stærstu fyrirtækja úr jarðhitageiranum, alls staðar að úr heiminum. Þar verður hægt að ræða hugmyndir, samstarfsmöguleika og sjá hvort næsta stóra verkefni geti orðið til í Jarðhitagarðinum á Hellisheiði. Höfundur er deildarstjóri Jarðhitagarðs Orku Náttúrunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jarðhiti Orkumál Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar