Félag Bjarna Ármannssonar tapaði 50 milljónum í fyrra Hörður Ægisson skrifar 20. september 2017 09:30 Sjávarsýn hefur tapað ríflega 380 milljónum síðustu tvör ár.
Fjárfestingarfélagið Sjávarsýn ehf., sem er í eigu Bjarna Ármannssonar, fjárfestis og fyrrverandi forstjóra Glitnis banka, tapaði ríflega 50 milljónum króna í fyrra. Þetta er annað árið í röð sem tap er á starfsemi félagsins en á árinu 2015 nam tapið um 333 milljónum króna. Samkvæmt nýbirtum ársreikningi Sjávarsýnar var hrein ávöxtun verðbréfa í eigu félagsins neikvæð um 253 milljónir króna en hins vegar fékk félagið greiddan arð að fjárhæð samtals um 355 milljónir. Eignir Sjávarsýnar námu liðlega 3.470 milljónum í árslok 2016, þar sem mestu munaði um eignarhluti í öðrum félögum og skuldabréf og aðrar langtímakröfur, en heildarskuldir voru um 1.243 milljónir. Eigið félagsins er því liðlega 2.230 milljónir króna. Sjávarsýn heldur utan um fjárfestingar Bjarna í ýmsum fyrirtækjum. Þannig er félagið eigandi að útivistarversluninni Ellingsen, fyrirtækinu Ísmar sem rekur verslun í Síðumúla, skórisanum S4S, sem á meðal annars Steinar Waage, Ecco, Skór.is og Kaupfélagið, og auk þess að eiga hlut í olíuleitarfyrirtækinu Fáfni Offshore. Sjávarsýn átti einnig um fjórðungshlut í Eddu útgáfu en seldi allan hlut sinn í félaginu í fyrra.Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Atvinnuleysi fimm prósent í júní Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira