Ólafur Eysteinn nýr prófessor við tækni- og verkfræðideild Háskólans HR Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 26. september 2017 10:03 Dr. Ólafur Eysteinn Sigurjónssonl auk doktorsprófi við Ónæmisfræðistofnun Ríkisháskólasjúkrahússins í Osló.
Dr. Ólafur Eysteinn Sigurjónsson hefur fengið framgang í stöðu prófessors við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík. Þetta kemur fram í tilkynningu frá háskólanum. Þar segir að Ólafur hafi verið lektor í heilbrigðisverkfræði við deildina frá 2008 og dósent við sömu deild frá 2014. Hefur hann meðal annars kennt sameinda- og frumulíffræði, vefjaverkfræði, lífaflfræði og lífefnisfræði. Ólafur hefur verið forstöðumaður rannsókna og nýsköpunar og stofnfrumuvinnslu Blóðbankans frá 2006. Ólafur er stofnandi og annar af eigendum nýsköpunarfyrirtækisins Platome líftækni og gegnir stöðu rannsóknarstjóra við fyrirtækið. Ólafur hefur setið í stjórn Skandinavísku lífstoðefnissamtakanna frá árinu 2013 og verið forseti þeirra frá árinu 2016. Ólafur lauk doktorsprófi við Ónæmisfræðistofnun Ríkisháskólasjúkrahússins í Osló og við Lífeðlisfræðistofnun læknadeildar Háskólans í Osló, árið 2006. Fyrir ritgerð sína „The Differentiation Potential of Human Somatic Stem Cells,“ hlaut Ólafur gullorðu Haralds Noregskonungs árið 2007. Ólafur lauk M.Sc. gráðu í lífvísindum við Læknadeild Háskóla Íslands árið 2001 og B.Sc. gráðu í sameindalíffræði frá líffræðiskor Háskóla Íslands árið 1998. Í tilkynningunni segir að markmið rannsóknarhóps Ólafs séu meðal annars rannsóknir á sviði endurmyndunar-læknisfræði (e. regeneratvie medicine) með áherslu á þróun aðferða til ræktunar stofnfruma utan líkama til klínískrar notkunar og hvernig má beita vefjaverkfræði og lífstoðefnum til beinmyndunar frá stofnfrumum. Ólafur stundar einnig rannsóknir á sviði blóðbankafræða með áherslu á að skilja skemmdir sem verða í rauðfrumum og blóðflögum við geymslu þeirra og hver áhrif smithreinsunar eru á slíkar skemmdir.
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Bylgjan slær enn met í hlustun Samstarf Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira