Stundin tapaði tæplega níu milljónum í fyrra Hörður Ægisson skrifar 13. september 2017 09:30 Tekjur af starfsemi Stundarinnar jukust um liðlega 30 milljónir á milli ára og námu samtals 120,6 milljónum á árinu 2016.
Útgáfufélagið Stundin ehf. var rekið með tæplega 8,6 milljóna króna tapi í fyrra borið saman við 12,9 milljóna króna tap árið áður. Samkvæmt nýbirtum ársreikningi var eigið fé félagsins jákvætt um 2,9 milljónir í árslok 2016. Tekjur af starfsemi Stundarinnar jukust um liðlega 30 milljónir á milli ára og námu samtals 120,6 milljónum á árinu 2016. Tilkynnt var um það í nóvember 2015 að prentútgáfa Stundarinnar myndi koma út tvisvar í mánuði í stað einu sinni. Útgáfukostnaður Stundarinnar var ríflega 50 milljónir í fyrra og þá jókst launakostnaður um 20 milljónir á milli ára og var samtals 67 milljónir. Á árinu 2016 voru 8,8 stöðugildi hjá félaginu. Heildarskuldir Stundarinnar nema 12,6 milljónum króna, að stærstum hluta viðskiptaskuldir. Hluthafar félagsins voru 16 talsins í lok síðasta árs en sjö hluthafar, meðal annars ritstjórarnir Jón Trausti Reynisson og Ingibjörg Dögg Kjartansdóttur, áttu hver um sig 12,2 prósenta hlut. Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál.Uppfært klukkan 10:49 Í fyrri útgáfu fréttarinnar var Ingibjörg sögð aðstoðarritstjóri. Hún er ritstjóri ásamt Jóni Trausta. Beðist er velvirðingar á þessu.
Markaðir Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira