Jordan: Myndi vinna LaVar Ball þótt ég væri einfættur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. ágúst 2017 13:00 Michael Jordan er af flestum talinn besti körfuboltamaður sögunnar. vísir/getty
Michael Jordan segir að hann myndi vinna LaVar Ball í körfubolta, jafnvel þótt hann væri einfættur. Fyrr á þessu ári sagði athyglissjúki körfuboltapabbinn Ball að hann myndi vinna Jordan í körfubolta, einn á einn. Athyglisverð staðhæfing í ljósi þess að Ball spilaði aldrei sem atvinnumaður í körfubolta og skoraði aðeins 2,2 stig að meðaltali í leik í með Washington State háskólanum. Á meðan er Jordan af flestum talinn besti körfuboltamaður allra tíma. „Hann á ekki skilið svar en ég ætla að svara fyrst þið spurðuð. Ég held að hann myndi ekki vinna mig þótt ég væri einfættur,“ sagði Jordan er hann var spurður um ummæli Ball. Hinn yfirlýsingaglaði Ball var ekki lengi að svara fyrir sig og sagði að markmiði sínu væri náð. „Í alvöru, ég spilaði ekki einu sinni sem atvinnumaður og núna er verið að tala um mig og Michael Jordan. Það er þetta sem ég er að tala um. Hann segist geta unnið mig á öðrum fætinum. Vittu til: ég get unnið hann með einni hendi,“ sagði Ball. Þótt Ball hafi ekki verið merkilegur körfuboltamaður á sínum tíma á hann þrjá syni sem eru allir góðir í körfubolta. Sá elsti, Lonzo Ball, var valinn annar í nýliðavali NBA-deildarinnar 2017 af Los Angeles Lakers. Miðsonurinn, LiAngelo Ball, leikur með UCLA háskólanum og sá yngsti, LaMelo Ball, með Chino Hills menntaskólanum.LaVar Ball heldur áfram að gera alla brjálaða.vísir/getty
NBA Tengdar fréttir Facebook ætlar að gera raunveruleikaþætti um Ball-fjölskylduna Athyglissjúki körfuboltapabbinn LaVar Ball er búinn að landa samningi um raunveruleikaþátt um sig og fjölskyldu sína. Það gerði hann við Facebook. 6. júlí 2017 12:30 Fékk sekt fyrir að segja Ball að fokka sér Körfuboltapabbinn stóryrti, LaVar Ball, fer í taugarnar á mörgum og menn eru óhræddir við að láta hann heyra það. 10. júlí 2017 20:00 LaVar Ball lét skipta um dómara sem gaf honum tæknivillu Athyglissjúki körfuboltapabbinn, LaVar Ball, heldur áfram að koma sér í fréttirnar. 29. júlí 2017 10:00 Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira
Facebook ætlar að gera raunveruleikaþætti um Ball-fjölskylduna Athyglissjúki körfuboltapabbinn LaVar Ball er búinn að landa samningi um raunveruleikaþátt um sig og fjölskyldu sína. Það gerði hann við Facebook. 6. júlí 2017 12:30
Fékk sekt fyrir að segja Ball að fokka sér Körfuboltapabbinn stóryrti, LaVar Ball, fer í taugarnar á mörgum og menn eru óhræddir við að láta hann heyra það. 10. júlí 2017 20:00
LaVar Ball lét skipta um dómara sem gaf honum tæknivillu Athyglissjúki körfuboltapabbinn, LaVar Ball, heldur áfram að koma sér í fréttirnar. 29. júlí 2017 10:00