Íslensku strákarnir skoruðu tvöfalt meira en mótherjarnir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. júlí 2017 16:44 Strákarnir fagna hér léttum sigri í leikslok. Mynd/Instagram-síða HSÍ
Íslenska 21 árs landsliðið í handbolta vann afar sannfærandi sigur á Sádí Arabíu í dag í öðrum leik sínum á heimsmeistaramóti 21 árs landsliða í Alsír. Ísland skoraði tvöfalt fleiri mörk en mótherjarnir í leiknum og vann 24 marka sigur, 48-24. Íslenska liðið var komið 24-9 yfir í hálfleik þannig að leikurinn var bara eins og létt æfing. Ísland tók fljótlega öll völd á vellinum, eftir að Sádar komust í 2-3 skoruðu íslensku strákarnir 10 mörk í röð og komust 12-3 yfir. Það var mjög góður kafli hjá strákunum. Íslensku strákarnir bættu enn í og komust 22-6 yfir með 7 mörkum í röð. Í hálfleik var staðan 24-9 og þetta var frábær fyrri hálfleikur. Íslensku strákarnir héldu áfram í seinni hálfleik að hafa öll undirtökum í leiknum, sem var þó aðeins jafnari en sá fyrri. Á 40. mínútu var staðan 32-13 fyrir Íslandi og eftir 50 mínútna leik var staðan 40-18. Í leikslok munaði svo 24 mörkum, 48-24 sigur Íslands og liðið komið með fjögur stig í D riðli keppninnar.Mörk Íslands í leiknum: Óðinn Þór Ríkharðsson 8/1 Hákon Daði Styrmisson 7 Birkir Benediktsson 6 Sigtryggur Daði Rúnarsson 6 Kristján Örn Kristjánsson 6 Elliði Snær Viðarsson 3 Þorgeir Bjarki Davíðsson 3 Ýmir Örn Gíslason 2 Ómar Ingi Magnússon 2 Elvar Örn Jónsson 2 Aron Dagur Pálsson 2 Dagur Arnarsson 1Markvarsla: Grétar Ari Guðjónsson 14/2 (58%) Viktor Gísli Hallgrímsson 7 (32%) Íslenska liðið vann níu marka sigur á Argentínu í fyrsta leik sínum í gær og er því að byrja heimsmeistaramótið vel. Næsti leikur íslenska liðsins er á móti heimamönnum í Alsír á föstudaginn og fá því strákarnir frídag á morgun. Marokkó og Króatía eru einnig í þessum riðli en fjórar efstu þjóðirnar tryggja sér sæti í sextán liða úrslitum keppninnar. Þetta verður hörkuleikur á móti Alsír en það má búast við að öll sætin í 8.200 manna höllinni verði setin og á bandi heimamanna.
Handbolti Mest lesið Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Bjarki Már og Orri Freyr með stórsigra í Meistaradeildinni Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Haukur komið að nítján mörkum í fyrstu tveimur leikjunum í Meistaradeildinni Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals „Stefnum á að vera í þessum efri hluta“ Uppgjörið: ÍR - ÍBV 22-22 | Heimakonur komnar á blað Haukur magnaður í sigri á Viktor Gísla og félögum Alfa Brá og Katrín Anna í landsliðið Tímabilið byrjar vel hjá Bjarka sem varð markahæstur í stórsigri Gummersbach gaf mikið eftir í seinni hálfleik Sjá meira