Jón Þorgeir ráðinn framkvæmdastjóri ÍMARK Atli Ísleifsson skrifar 8. júní 2017 08:45 Jón Þorgeir Kristjánsson.
Jón Þorgeir Kristjánsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri ÍMARK. Hann mun hefja störf í ágúst á þessu ári og tekur við af Ástu Pétursdóttur, sem hefur gegnt starfinu síðastliðin þrjú ár og lætur af störfum að eigin ósk. Jón Þorgeir hefur gegnt stöðu markaðsstjóra Borgarleikhússins frá 2014. Í tilkynningu segir að Jón Þorgeir hafi starfað í leikhúsi um árabil og gegnt ýmsum störfum meðal annars sem hönnuður eða verkefnastjóri og tekið þátt í uppsetningu á annað hundrað leiksýninga. „Jón Þorgeir er með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og BA í grafískri hönnun frá Listaháskóla Íslands. Þá situr Jón Þorgeir í stjórn Reykjavík Dance Festival og verslunarinnar Indiska.“ Í tilkynningunni segir jafnframt að Hildur Björk Hafsteinsdóttir og Ragnar Gunnarsson hafi verið kosin ný inn í stjórn ÍMARK á aðalfundi félagsins sem fór fram 24. maí síðastliðinn. Hafi þau tekið sæti Kristjáns Schram og Ágústu Hrundar Steinarsdóttur. „Hildur Björk er markaðsstjóri Símans frá 2014 og sá áður um markaðssetningu á fyrirtækjamarkaði ásamt því að verkefnastýra viðburðum Símans frá 2009. Hún var verkefnastjóri í markaðsdeild Icelandair frá 2006 til 2009. Þar áður starfaði hún við sölu- og markaðsmál hjá Hugviti. Hildur Björk er með BS í viðskiptafræði með áherslu á markaðsfræði úr Háskóla Íslands. Ragnar Gunnarsson er framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Brandenburg og einn af eigendum hennar. Hann hefur unnið í auglýsingageiranum frá 2000 og var meðal annars framkvæmdarstjóri auglýsingastofunnar Fíton frá 2009. Þá var Ragnar framkvæmdastjóri ÍMARK 1998 og formaður SÍA (Samband íslenskra auglýsingastofa) 2011. Ragnar útskrifaðist úr Háskóla Íslands með cand.oecon gráðu með áherslu á stjórnun og markaðsmál 1998. Stjórn ÍMARK fyrir starfsárið 2017-2018: Jón Þorgeir Kristjánsson, framkvæmdastjóri ÍMARK María Hrund Marinósdóttir, formaður ÍMARK Einar Ben, meðeigandi og framkvæmdastjóri Tjarnargötunnar Guðjón Guðmundsson, meðeigandi og ráðgjafi hjá Manhattan Marketing Gunnar K. Sigurðsson, markaðsstjóri Isavia Hildur Björk Hafsteinsdóttir, markaðsstjóri Símans Hreiðar Þór Jónsson, framkvæmdastjóri Nóra Ragnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri og meðeigandi Brandenburgar.“
Ráðningar Mest lesið Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Viðskipti erlent Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Viðskipti innlent Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Viðskipti innlent Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Viðskipti innlent Skordýr í dillinu Viðskipti innlent Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Atvinnulíf Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Sjá meira