Helgi Bjarnason ráðinn forstjóri VÍS Hörður Ægisson skrifar 2. maí 2017 22:44 Helgi hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra viðskiptabankasviðs Arion banka frá október 2011 og var áður framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Arion banka.
Helgi Bjarnason hefur verið ráðinn forstjóri tryggingafélagsins VÍS. Helgi hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra viðskiptabankasviðs Arion banka frá október 2011 og var áður framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Arion banka. Þetta kemur fram í tilkynningu sem VÍS birti í Kauphöllinni fyrr í kvöld en Helgi tekur við starfi forstjóra VÍS af Jakobi Sigurðssyni sem sagði starfi sínu lausu 19. apríl síðastliðinn. Áður en Helgi hóf störf hjá Arion banka var hann aðstoðarframkvæmdastjóri Sjóvá Almennra auk þess sem hann gegndi stöðu framkvæmdastjóra Sjóvár Almennra líftryggingar. Fyrir það starfaði hann sem tryggingastærðfræðingur hjá Alþjóða líftryggingarfélaginu. Þá hefur Helgi gegnt stjórnarformennsku í Verði tryggingum hf. og Verði líftryggingum hf. Í tilkynningu VÍS er haft eftir Helga: „Það er einstaklega spennandi verkefni að taka við stjórn VÍS í dag en rekstur tryggingafélaga hefur verið að breytast hratt á undanförnum árum, meðal annars með hraðri þróun upplýsingatækni og nánari tengingum við fjármálamarkaði. VÍS, sem stærsta og öflugasta tryggingafélag landsins, er vel í stakk búið að laga sig að slíkum breytingum. Þannig tryggjum við farsælan rekstur til framtíðar á sama tíma og við höldum á lofti því sem ávallt hefur verið leiðarljós félagsins að tryggingar snúist um fólk. Ég hlakka til að vinna með öflugum hópi starfsfólks að áframhaldandi þróun og útvíkkun þeirrar þjónustu sem VÍS veitir þeim tugþúsundum Íslendinga sem eru í viðskiptavinahópi félagsins.“ Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, stjórnarformaður VÍS, segir mikinn feng fyrir VÍS að fá Helga til starfa. „Hann býr yfir yfirgripsmikilli og djúpri þekkingu og reynslu af jafnt tryggingamarkaði sem og fjármálamarkaði. Í starfi sínu hjá Arion banka hefur hann m.a. tekið þátt í þróun nýrra stafrænna lausna en VÍS hefur í nýrri stefnumótun lagt aukna áherslu á framfarir á því sviði. Stjórn VÍS er sannfærð um að undir hans stjórn muni félagið halda áfram að sækja fram sem leiðandi tryggingafélag á Íslandi.“
Ráðningar Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira