Golden State vann Houston öðru sinni í vikunni | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. apríl 2017 11:23 Stephen Curry og James Harden eigast við. vísir/getty
Ellefu leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í kvöld. Golden State Warriors vann Houston Rockets í öðru sinni í vikunni. Lokatölur 107-98, Golden State í vil. Skvettubræðurnir Stephen Curry og Klay Thompson skoruðu samtals 44 stig og settu niður fjóra þrista hvor. Curry var með 24 stig, sjö fráköst og fimm stoðsendingar. Thompson skoraði 20 stig, tók átta fráköst og gaf fjórar stoðsendingar. James Harden fór fyrir Houston-liðinu með 17 stigum,, 12 fráköstum og átta stoðsendingum. San Antonio Spurs gerði góða ferð til Oklahoma og vann fimm stiga sigur, 95-100, á Russell Westbrook og félögum. Kawhi Leonard var með 28 stig og átta fráköst í liði San Antonio sem er í 2. sæti Vesturdeildarinnar. Westbrook var venju samkvæmt með þrefalda tvennu í liði Oklahoma. Hann skoraði 32 stig, tók 15 fráköst og gaf 12 stoðsendingar. LeBron James skoraði 34 stig þegar Cleveland Cavaliers bar sigurorð af Philadelphia 76ers, 122-105. James tók einnig níu fráköst og gaf sex stoðsendingar. Kyrie Irving bætti 24 stigum og níu stoðsendingum við fyrir Cleveland sem er í 2. sæti Austurdeildarinnar. Al Horford tryggði toppliði Austurdeildarinnar, Boston Celtics, nauman sigur á Orlando Magic á heimavelli, 117-116. Horford var alls með 12 stig, níu fráköst og sex stoðsendingar. Isiah Thomas var að venju stigahæstur í liði Boston en hann gerði 35 stig.Úrslitin í nótt: Golden Stae 107-98 Houston Oklahoma 95-100 San Antonio Cleveland 122-105 Philadelphia Boston 117-116 Orlando Charlotte 122-114 Denver Toronto 111-100 Indiana New Orleans 117-89 Sacramento Miami 94-98 NY Knicks Memphis 99-90 Dallas Milwaukee 108-105 Detroit Utah 95-88 Washington
NBA Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Sögulegur dagur er Thelma sópaði til sín gullverðlaunum Sport Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira