Golden State hóf lífið án Durants með tapi | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 3. mars 2017 07:30
Golden State Warriors hefur ekki tapað mörgum leikjum í NBA-deildinni í körfubolta undanfarin misseri en í nótt tapaði það öðrum leiknum í röð þegar liðið lá í valnum gegn Chicago Bulls á útivelli, 94-87. Þetta var fyrsti leikur liðsins eftir að Kevin Durant meiddist en stórstjarnan sem kom frá Oklahoma City fyrir tímabilið meiddist illa í síðasta leik og verður frá næstu mánuðina. Golden State þurfti að gefa mikið upp á bátinn til að fá Durant til liðsins og hefur nú bæði litla hæð í liðinu og langt frá því jafnsterkan varamannabekk og áður. Steph Curry og Klay Thompson voru ískaldir fyrir utan þriggja stiga línuna en saman hittu þeir aðeins úr þremur af 22 þriggja stiga skotum sínum. Curry skoraði 23 stig og Thompson aðeins þrettán. Jimmy Butler var stigahæstur hjá Chicago með 22 stig en Dwayne Wade skoraði tólf stig og tók fimm fráköst. Russell Westbrook skoraði 45 stig fyrir Oklahoma City þegar fjögurra leikja sigurhrinu þess lauk í nótt. Thunder tapaði á útivelli fyrir Portland Trail Blazers, 114-109. Damien Lillard skoraði 33 stig fyrir Portland sem er í níunda sæti vestursins, þremur leikjum á eftir Denver Nuggets og þarf að fara á skrið ef liðið ætlar sér í úrslitakeppnina.Úrslit næturinnar: Chicago Bulls - Golden State Warriors 94-87 Phoenix Suns - Charlotte Hornets 120-103 Portland Trail Blazers - OKC Thunder 114-109
NBA Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Sögulegur dagur er Thelma sópaði til sín gullverðlaunum Sport Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira