Carmelo Anthony fær að spila í Stjörnuleiknum á sunnudaginn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. febrúar 2017 11:15 Carmelo Anthony og LeBron James. Vísir/AP
Carmelo Anthony hjá New York Knicks verður í liði Austurdeildarinnar í Stjörnuleik NBA-deildarinnar í körfubolta sem fer fram í New Orleans á sunnudagskvöldið. Leikurinn verður sem fyrr í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport en þar koma bestu leikmenn NBA-deildarinnar saman. Anthony var ekki upphaflega valinn í liðið en hann kemur nú inn fyrir Kevin Love hjá Cleveland Cavaliers sem er meiddur. Það er Adam Silver, yfirmaður NBA-deildarinnar, sem velur þá leikmenn sem koma inn ef um meiðsli eru að ræða hjá leikmönnum sem valdir voru í leikinn með hefðbundnum hætti í kosningu almennings eða af þjálfurum. Adam Silver lét Carmelo Anthony vita fyrir leikinn í nótt og Melo skoraði 19 stig í fyrsta leikhlutanum þar sem hann hitti úr 7 af 8 skotum sínum. Hann endaði leikinn með 30 stig en New York liðið tapaði fyrir Russell Westbrook og félögum í Oklahoma City Thunder. Þetta verður í tíunda skiptið á ferlinum sem Carmelo Anthony er valinn í Stjörnuleikinn. Carmelo Anthony er með 23,4 stig, 6,1 frákast og 2,9 stoðsendingar að meðaltali í NBA-deildinni í vetur. Hugsanleg skipti á honum og öðrum toppleikmanni hafa verið mikið í umræðunni að undanförnu og þá hefur nafn Kevin Love verið upp á borðinu. Carmelo Anthony sjálfur býst þó við því að klára tímabilið sem leikmaður New York Knicks.
NBA Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Sögulegur dagur er Thelma sópaði til sín gullverðlaunum Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira