Þekktu þingmanninn: Sjómennskan og blaðamennskan nýtast á Alþingi Snærós Sindradóttir skrifar 18. febrúar 2017 08:00 Kolbeinn segir AA-bókina hafa gjörbreytt lífi sínu til hins betra. Fréttablaðið/Eyþór
Kolbeinn Óttarsson Proppé er nýr þingmaður á Alþingi. Hver hefur ferill þinn í stjórnmálum verið? Flosi vinur minn Eiríksson gerði mig að formanni Æskulýðsfylkingar Alþýðubandalagsins í Kópavogi. Þá var ég 15 ára og þurfti undanþágu, þar sem aldurstakmarkið var 16. Starfaði innan Alþýðubandalagsins og var m.a. formaður Alþýðubandalagsins í Reykjavík. Varð varaborgarfulltrúi R-listans og sat í nefndum fyrir hann. Var kosningastjóri VG í Reykjavík 1999 og leiddi lista VG í Suðurkjördæmi 2003, en náði ekki kjöri. Hætti afskiptum af stjórnmálum það ár, en gekk svo aftur í VG 2015 og var kjörinn á þing 2016.Hvernig líst þér á þingmannsstarfið hingað til? Mjög vel. Þetta var nokkuð lengi í gang. Nú er hins vegar allt í fullum gangi og starfað í þingsal og í nefndum. Maður finnur að það er hægt að hafa áhrif, en að sjálfsögðu eru því takmörk sett, verandi þingmaður í stjórnarandstöðu. Það liggja mörg mál undir og mikið sem þarf að kynna sér og starfið að mörgu leyti kaótískt. Það hentar mér vel.Kolbeinn Óttarsson Proppé ásamt syni sínum.Hvað úr reynslubankanum nýtist þér í nýja starfinu? Í raun allt, enda starfið fjölbreytt. Úr sjómennskunni tek ég það að einhenda mér í verkin og ljúka í törn, og úr bóksölunni það að koma fram við fólk af virðingu. En mest nýtist mér blaðamennskan; bæði þar sem ég skrifaði um stjórnmál og ekki síður varðandi vinnubrögð og vinnuumhverfi. Að vita ekki að morgni hvernig dagurinn verður og þurfa að setja sig inn í fjölbreytt mál á skömmum tíma.Sérðu fyrir þér að gera stjórnmál að ævistarfinu? Ég hef aldrei séð fyrir mér að neitt einstakt starf verði mitt ævistarf.Hvar ólstu upp og hvernig var æskan? Fyrir fjórtán ára aldur bjó ég, í tímaröð, á eftirfarandi stöðum: Reykjavík, Dalvík, Hafnarfirði, Siglufirði og Kópavogi. Eftir átta ár í Kópavogi flutti ég svo til Reykjavíkur 1994 og hef búið þar síðan. Æskan var yndisleg og einkenndist af frelsi sem fylgdi sjávarplássunum Dalvík og Sigló. Maður hljóp um allt, lék sér og kannaði, fór í ævintýraferðir upp í fjall og niður í fjöru, og svo jakahlaup og sjóróðra – þegar enginn sá til. Byrjaði snemma að vinna, eða tólf ára gamall í frystihúsinu á Sigló.Kolbeinn og Karlakór ReykjavíkurHvernig nærir þú þig andlega? Ég les og hlusta á tónlist og líka á podköst og hljóðbækur. Ekkert nærir þó betur en að spila á gítarinn og syngja, oftast Dylan.En líkamlega? Göngutúrar. Að ganga með hundinn í náttúrunni, með hljóðbók, eða að hlusta á náttúruna, er yndislegt.Hvert langar þig mest að ferðast? Það er misjafnt, aðallega finnst mér gaman að ferðast og skiptir áfangastaðurinn ekki öllu. Núna er það Ítalía.Hvernig verðu helgarfríum? Sæki fundi í mannræktandi samtökum, dunda mér með dóttur minni, fer í göngutúra með hundinn, rölti um bæinn, kíki á kaffihús. Bestu helgarnar eru þær sem ég fer í sumarbústaðinn í Þjórsárdal.Kolbeinn og hundurinn KolkaHvaða hljómsveit eða tónlistarmaður er mest spilaður á Spotify-aðgangnum þínum? Bob Dylan.Hvað er síðasta myndband sem þú horfðir á á YouTube? Klippa úr Colbert Report um Donald Trump.Hvaða bók eða rit hefur haft mest áhrif á líf þitt? Hvers vegna? Þær eru margar. Silungsveiði í Ameríku eftir Brautigan, af því að ég fór með hana einn á lestarferðalag um Evrópu, las svona 20 sinnum og lærði um furður lífsins og tungumálið. Frelsið eða dauðinn, eftir Kazantzakis, af því að hún kenndi mér ungum um mikilvægi þess að berjast fyrir hugsjónum sínum en um leið að það getur farið út í öfgar. En sú sem mest hefur haft áhrif á mig er AA-bókin, hún gjörbreytti lífi mínu til hins betra.Kolbeinn ásamt dóttur sinni.Hefurðu lent í lífsháska eða annarri dramatískri lífsreynslu? Praktíserandi alkóhólisti lendir iðulega í dramatískri lífsreynslu og ekkert dramatískara en viðskilnaðurinn við alkóhólið. En lífsháska, tja?… Allt frá því að vera kominn í flotgalla meðan sjórinn streymir inn í togarann úti í ballarhafi yfir í að hafa næstum keyrt út af. Sú lífsreynsla sem mest áhrif hefur haft á mig er þó líklega að missa föður minn, tvítugur.Þú varst í hljómsveitinni Synir Raspútíns. Blundar í þér draumur um að verða rokkstjarna? Hvað meinarðu með „að verða“? Ertu að gefa í skyn að ég sé ekki rokkstjarna nú þegar? Það vill svo til að hluti af Sonum Raspútíns kemur fram á þorrablóti í kvöld að spila úrval úr „samlede værker“. Þá hlýtur heimsreisan að vera á næsta leiti.
Alþingi Donald Trump Mest lesið Var atvinnulaus, skítblönk og á bömmer þegar hún tók ákvörðun sem breytti öllu Lífið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Fleiri fréttir Var atvinnulaus, skítblönk og á bömmer þegar hún tók ákvörðun sem breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi Sjá meira