Enn eitt tapið hjá Clevelend Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. janúar 2017 08:00
Ekkert hefur gengið hjá Cleveland Cavaliers síðustu vikurnar en liðið tapaði nótt sjötta leik sínum í síðustu átta leikjum. Cleveland tapaði fyrir Sacramento í framlengdum leik, 116-112, á heimavelli. Aaron Afflalo setti niður þriggja stiga körfu fyrir gestina þegar 17,3 sekúndur voru eftir. Cleveland fór í sókn en LeBron James klikkaði á þriggja stiga skoti og Sacramento tryggði sér sigur af vítalínunni. Sacramento lenti mest fimm stigum undir í framlengingunni en það kom ekki að sök. DeMarcus Cousins skoraði 28 stig fyrir gestina og tók þar að auki tíu fráköst. James náði þrefaldri tvennu í leiknum en hann var með 24 stig, þrettán fráköst og ellefu stoðsendingar. Hann hefur verið gagnrýninn undanfarna daga og vikur og efast um raunverulegan vilja félagsins að verja meistaratitilinn í vor. Þetta var þriðja tap Cleveland í röð en liðið er þó enn efst í austurdeildinni með 30 sigra. Golden State vann Charlotte, 113-103, er Steph Curry sneri aftur til sinnar heimaborgar. Hann var með 28 stig í leiknum, þar af sex þriggja stiga körfur. Kevin Durant skoraði 33 stig í leiknum en fór mikinn í fjórða leikhluta er hann skoraði sextán stig. Oklahoma City vann New Orleans, 114-105. Russell Westbrook var með 27 stig, tólf fráköst og tíu stoðsendingar og náði þar með sinni 60. þreföldu tvennu á ferlinum. Þar með jafnaði hann árangur Larry Bird. Philadelphia vann Milwaukee, 114-109, þó svo að Joel Embiid hafi misst af sínum öðrum leik í röð. Þetta var fimmti sigur Philadelphia í síðustu sex leikjum liðsins.Úrslit næturinnar: Cleveland - Sacramento 112-116 Boston - Houston 120-109 Brooklyn - Miami 106-109 Chicaco - Atlanta 114-119 Milwaukee - Philadelphia 109-114 Memphis - Toronto 101-99 New Orleans - Oklahoma City 105-114 Charlotte - Golden State 103-113 Dallas - New York 103-95 Portland - LA Lakers 105-98
NBA Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Sögulegur dagur er Thelma sópaði til sín gullverðlaunum Sport Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira