Fjölgun ferðamanna í ár sú mesta frá upphafi mælinga Kristján Már Unnarsson skrifar 30. desember 2016 18:30
Fjölgun erlendra ferðamanna milli ára verður sú mesta sem sést hefur frá því opinberar skráningar hófust hérlendis, eða nærri 40 prósent. Gestafjöldinn í ár verður rétt um 1,8 milljónir. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Það þarf ekki annað en að horfa á mannmergðina við Hallgrímskirkju þessa dagana til að sjá það sem er að breyta Íslandi. Árið sem er að líða er að slá öll met, bæði í fjölda og fjölgun ferðamanna, samkvæmt tölum sem við fengum í dag frá Ferðamálastofu, en opinberar skráningar ná aftur til ársins 1950.Tölur um brottfarir erlendra ferðamanna um Leifsstöð sýna fimmföldun undanfarin tólf ár, úr 361 þúsund árið 2005 og upp í 1.756 þúsund í ár, samkvæmt áætlaðri tölu.Grafík/Tótla I. Sæmundsdóttir.Súlurit yfir brottfarir erlendra ferðamanna um Leifsstöð lýsir vel þróuninni undanfarin tólf ár. Árið 2005 voru ferðamennirnir 361 þúsund talsins og tiltölulega hæg fjölgun næstu árin þar á eftir. En svo gaus Eyjafjallajökull árið 2010 og síðan þá hafa súlurnar farið að minna æ meir á hækkandi stöplana í hliðarálmum Hallgrímskirkju og stefnir ferðamannafjöldinn í 1.756 þúsund í ár fyrir Leifsstöð. Tölur um hlutfallslega breytingu milli ára sýna að ferðamönnum fækkaði lítillega á árunum eftir hrun, 2009 og 2010, en þá hófst ævintýrið, og nú stefnir í að 30 prósenta fjölgun í fyrra verði toppuð með 39 prósenta fjölgun í ár.Súluritið sýnir þann kipp sem varð í fjölgun ferðamanna eftir eldgosið í Eyjafjallajökli árið 2010.Grafík/Tótla I. Sæmundsdóttir.Með aukningunni í ár er slegið yfir 60 ára gamalt met í ferðamannafjölgun milli ára, frá árinu 1955, en það ár komu tæplega 9.500 ferðamenn til landsins, miðað við rúmlega 6.800 árið 1954. Þeim hafði þá fjölgað um 2.600 frá fyrra ári, eða um 38,5 prósent milli ára. Þegar bætt er við þeim sem koma með Norrænu og um aðra flugvelli en Keflavík má gera ráð fyrir að heildarfjöldinn í ár verði um 1.785 þúsund ferðamenn, miðað við áætlun sem Halldór Arinbjarnarson, upplýsingastjóri Ferðamálastofu, telur varfærnislega, - talan gæti farið í 1,8 milljónir.Tölur um fjölgun í einstökum mánuðum sýna 60 prósenta aukningu síðustu þrjá mánuði ársins, miðað við sömu mánuði í fyrra. Tölur fyrir desember eru áætlaðar.Grafík/Tótla I. Sæmundsdóttir.Tölur um fjölgun í einstökum mánuðum ársins eru athyglisverðar. Janúar byrjaði með 24 prósenta fjölgun frá sama mánuði í fyrra, svo kom febrúar með 43 prósent, aukningin hélst í um og yfir 30 prósentum fram á haust, en síðustu þrír mánuðir eru hreint ótrúlegir, október og nóvember með 60 og 61 prósent, og menn áætla að fjölgunin nú í desember verði vart minni. Eflaust þykir einhverjum nóg um og myndir frá Skólavörðuholtinu í dag rifjuðu upp ljóðlínur Steins Steinars um Hallgrímskirkju: „Húsameistari ríkisins! Ekki meir, ekki meir!“
Ferðamennska á Íslandi Tengdar fréttir Þriggja bíla árekstur í brekkunni niður að Vík Mikil hálka er nú á vegum á Suðurlandi. 26. desember 2016 12:34 Svona er slóðinn sem heitir Dettifossvegur Íbúar við Öxarfjörð hafa brugðist hart við áformum stjórnvalda að fresta lagningu nýs Dettifossvegar. 2. júlí 2016 22:28 Tekjur af turni Hallgrímskirkju fara yfir 200 milljónir Heimsóknum gesta í Hallgrímskirkjuturn hefur fjölgað mikið síðustu ár. Samhliða hafa tekjur kirkjunnar aukist verulega. Tekjurnar fara meðal annars í að greiða fjögur hundruð milljóna króna bankalán sem hvílir á kirkjunni. 8. september 2016 07:00 Bandarískir ferðamenn sagðir sækja til Íslands öryggisins vegna Fjallað er um málið á vef New York Times. 7. september 2016 11:15 Reykjavík orðin dýrust miðað við aðrar höfuðborgir Verulegar verðhækkanir hafa átt sér stað á liðum tengdum ferðaþjónustu á Íslandi á síðustu mánuðum. Hótel og veitingastaðir eru orðnir dýrari en fyrir hrun og dýrari en á evrusvæðinu og í Noregi. 8. september 2016 07:00 Ferðamenn verði 2,4 milljónir á næsta ári Greining Íslandsbanka gerir ráð fyrir því að fjöldi ferðamanna í ár verði 1,76 milljónir. 8. september 2016 07:00 Nóvembervelta ferðamanna svipuð og í júlí 2013 Erlend greiðslukortavelta nam 15,3 milljörðum króna í nóvember síðastliðnum en það er 67 prósenta aukning frá sama mánuði í fyrra. 20. desember 2016 08:27 Mikil fjölgun banaslysa í umferðinni síðustu ár Aukna umferð má rekja til fjölda ferðamanna og að efnahagsástand hefur lagast eftir hrun. Banaslys síðustu tveggja ára eru langt yfir meðaltali fimm ára á undan. Brýnt að merkja vegi vel og búa svo um hnúta að þeir séu öruggir fyrir al 26. nóvember 2016 07:00 Vegir eins og í þriðjaheimsríki Vegagerðin hefur verulegar áhyggjur af öryggi vegfarenda vegna fjölgunar ferðamanna. Mikill fjöldi ferðamanna er á vegum landsins um hátíðirnar. Illa búnir bílar á vegum landsins valda pirringi í umferðinni. 28. desember 2016 06:00 Rúta valt á Snæfellsnesvegi Þrír farþega voru fluttir á Landspítalann í Fossvogi. 29. desember 2016 19:23 Vegaþjónusta í lágmarki yfir áramót þrátt fyrir aukna umferð Umferð á vegum á Suðurlandi yfir hátíðirnar hefur tvö- til þrefaldast á tveggja ára tímabili. Aukningu má að mestu leyti rekja til fjölgunar ferðamanna. Þrátt fyrir það verður þjónusta við vegi á þessum tíma í lágmarki. 29. desember 2016 07:00 Erlendir ferðamenn eyða sem aldrei fyrr hér á landi Talsverð aukning er á eyðslu ferðamanna hér á landi á milli ára. 22. september 2016 09:43 Hagkerfið berskjaldað fyrir áföllum í ferðaþjónustu Nýir útreikningar Seðlabanka Íslands sýna að Íslendingar myndu lenda í miklum efnahagssamdrætti sem myndi smita út frá sér inn í allt hagkerfið ef fækkun yrði í fjöldi ferðamanna hér á landi og fjöldinn yrði aftur svipaður og hann var á árinu 2012. 12. október 2016 18:30 Mest lesið Ná að spara hver mánaðarmót en hvað svo? Viðskipti innlent Sjónvarpsstöðin Sýn verður í opinni dagskrá Viðskipti innlent Björn Berg svarar lesendum: Eyðir alltaf neyðarsjóðnum í vitleysu Neytendur SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Viðskipti erlent Tillaga Vilhjálms felld með nánast öllum atkvæðum Viðskipti innlent Nokkurra ára leit að kaupanda eigna í Helguvík lokið Viðskipti innlent Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ Viðskipti erlent Samruni fyrirtækja: „Það sem ekki þarf að vera leyndarmál er ekki leyndarmál“ Atvinnulíf Einungis áfengi í boði hjá Heimkaupum Viðskipti innlent Fjórir sérfræðingar skoða möguleika Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ná að spara hver mánaðarmót en hvað svo? Sjónvarpsstöðin Sýn verður í opinni dagskrá Nokkurra ára leit að kaupanda eigna í Helguvík lokið Rafbílasala tekur við sér en nær enn ekki fyrri hæðum Tillaga Vilhjálms felld með nánast öllum atkvæðum Einungis áfengi í boði hjá Heimkaupum Vill lýsa yfir vantrausti á stjórnarmann vegna sautján ára tölvubréfs Fjórir sérfræðingar skoða möguleika Íslands í gjaldmiðlamálum Arctic Fish fær heimild til frekara fiskeldis Falið að leiða þjónustu og upplifun hjá Mílu Segja lækkun á olíu ekki hafa skilað sér til íslenskra neytenda Einföldun að segja að íslensk ferðaþjónusta sé láglaunagrein „Þetta eru mjög mikil vonbrigði fyrir okkur“ Tekjur Haga jukust á fyrsta ársfjórðungi Bjarni Ingimar ráðinn rekstrarstjóri Avia Húsið selt á 78 milljónir og Jakub þarf að reiða fram milljón Gjaldþrotin námu 1,2 milljörðum króna Stýrivextir líklegast ekki lækkaðir aftur á þessu ári Verðbólgan úr 3,8 prósentum í 4,2 prósent Alltof margir sem sitja eftir með sárt ennið Baldvin tekinn við sem forstjóri Samherja Lánardrottnar slá af milljarð af vöxtum á ári Birta stendur frammi fyrir 1,5 milljarða tapi á Play Ósátt með samráðsleysi stjórnvalda Atvinnuleysi minnkar lítillega Samkaup segja upp tuttugu og tveimur Vonast til að hefja slátrun árið 2028 Öryggismyndavélar á grenndarstöðvum eigi að sporna við sóðaskap Vilja lækka fasteignaskatta um tvo milljarða: „Við eigum fyrir þessu“ Á von á fleiri fyrirtækjum í hópmálssókn gegn Booking.com Sjá meira
Þriggja bíla árekstur í brekkunni niður að Vík Mikil hálka er nú á vegum á Suðurlandi. 26. desember 2016 12:34
Svona er slóðinn sem heitir Dettifossvegur Íbúar við Öxarfjörð hafa brugðist hart við áformum stjórnvalda að fresta lagningu nýs Dettifossvegar. 2. júlí 2016 22:28
Tekjur af turni Hallgrímskirkju fara yfir 200 milljónir Heimsóknum gesta í Hallgrímskirkjuturn hefur fjölgað mikið síðustu ár. Samhliða hafa tekjur kirkjunnar aukist verulega. Tekjurnar fara meðal annars í að greiða fjögur hundruð milljóna króna bankalán sem hvílir á kirkjunni. 8. september 2016 07:00
Bandarískir ferðamenn sagðir sækja til Íslands öryggisins vegna Fjallað er um málið á vef New York Times. 7. september 2016 11:15
Reykjavík orðin dýrust miðað við aðrar höfuðborgir Verulegar verðhækkanir hafa átt sér stað á liðum tengdum ferðaþjónustu á Íslandi á síðustu mánuðum. Hótel og veitingastaðir eru orðnir dýrari en fyrir hrun og dýrari en á evrusvæðinu og í Noregi. 8. september 2016 07:00
Ferðamenn verði 2,4 milljónir á næsta ári Greining Íslandsbanka gerir ráð fyrir því að fjöldi ferðamanna í ár verði 1,76 milljónir. 8. september 2016 07:00
Nóvembervelta ferðamanna svipuð og í júlí 2013 Erlend greiðslukortavelta nam 15,3 milljörðum króna í nóvember síðastliðnum en það er 67 prósenta aukning frá sama mánuði í fyrra. 20. desember 2016 08:27
Mikil fjölgun banaslysa í umferðinni síðustu ár Aukna umferð má rekja til fjölda ferðamanna og að efnahagsástand hefur lagast eftir hrun. Banaslys síðustu tveggja ára eru langt yfir meðaltali fimm ára á undan. Brýnt að merkja vegi vel og búa svo um hnúta að þeir séu öruggir fyrir al 26. nóvember 2016 07:00
Vegir eins og í þriðjaheimsríki Vegagerðin hefur verulegar áhyggjur af öryggi vegfarenda vegna fjölgunar ferðamanna. Mikill fjöldi ferðamanna er á vegum landsins um hátíðirnar. Illa búnir bílar á vegum landsins valda pirringi í umferðinni. 28. desember 2016 06:00
Rúta valt á Snæfellsnesvegi Þrír farþega voru fluttir á Landspítalann í Fossvogi. 29. desember 2016 19:23
Vegaþjónusta í lágmarki yfir áramót þrátt fyrir aukna umferð Umferð á vegum á Suðurlandi yfir hátíðirnar hefur tvö- til þrefaldast á tveggja ára tímabili. Aukningu má að mestu leyti rekja til fjölgunar ferðamanna. Þrátt fyrir það verður þjónusta við vegi á þessum tíma í lágmarki. 29. desember 2016 07:00
Erlendir ferðamenn eyða sem aldrei fyrr hér á landi Talsverð aukning er á eyðslu ferðamanna hér á landi á milli ára. 22. september 2016 09:43
Hagkerfið berskjaldað fyrir áföllum í ferðaþjónustu Nýir útreikningar Seðlabanka Íslands sýna að Íslendingar myndu lenda í miklum efnahagssamdrætti sem myndi smita út frá sér inn í allt hagkerfið ef fækkun yrði í fjöldi ferðamanna hér á landi og fjöldinn yrði aftur svipaður og hann var á árinu 2012. 12. október 2016 18:30