Engin þrenna hjá Westbrook en góður sigur hjá Oklahoma | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. desember 2016 07:40 Westbrook náði ekki þrennu en var samt langstigahæstur í liði Oklahoma. vísir/afp
Fimm leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Þau undur og stórmerki gerðust að Russell Westbrook náði ekki þrefaldri tvennu þegar Oklahoma City Thunder tók á móti Boston Celtics. Það kom þó ekki að sök því Oklahoma vann leikinn, 99-96. Westbrook var langstigahæstur í liði Oklahoma með 37 stig. Hann tók einnig 12 fráköst og gaf sex stoðsendingar. Al Horford skoraði 19 stig fyrir Boston sem er enn án síns aðalskorara, Isiah Thomas. Klay Thompson skoraði 30 stig þegar Golden State Warriors vann Minnesota Timberwolves á útivelli, 108-116. Þetta var tólfti útisigur Golden State í 14 leikjum á tímabilinu. Stephen Curry og Kevin Durant skoruðu 22 stig hvor fyrir Golden State sem situr á toppi Vesturdeildarinnar. Andrew Wiggins, Zach LaVine og Karl-Anthony Towns skoruðu allir 25 stig fyrir Minnesota. Sá síðastnefndi tók einnig 18 fráköst. Los Angeles Lakers tapaði sínum sjötta leik í röð þegar liðið fékk New York Knicks í heimsókn. Lokatölur 112-118, Knicks í vil. Kristpas Porzingis skoraði 26 stig fyrir New York, tók 12 fráköst og varði sjö skot. Derrick Rose bætti 25 stigum við og Brandon Jennings skoraði 19 stig af bekknum. Lou Williams var stigahæstur í liði Lakers með 24 stig.Úrslitin í nótt: Oklahoma 99-96 Boston Minnesota 108-116 Golden State LA Lakers 112-118 NY Knicks Detroit 79-97 Philadelphia Phoenix 119-120 New Orleans
NBA Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Sögulegur dagur er Thelma sópaði til sín gullverðlaunum Sport Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira