Beckham átti góðan leik á mánudagskvöldið er hann skoraði eitt snertimark í naumum 21-20 sigri Giants á Cincinnati Bengals.
Sjá einnig: Áhættan borgaði sig fyrir Manning og félaga
Útherjinn lét sig ekki vanta þegar UFC-bardagakvöld var í fyrsta sinn haldið í New York um helgina en Írinn Conor McGregor rotaði þá Eddie Alvarez í titilbardaga þeirra í léttvigt.
Með sigrinum skráði McGregor nafn sitt á spjöld sögunnar en enginn hefur áður verið handhafi tveggja titla í UFC samtímis. McGregor er einnig ríkjandi meistari í fjaðurvigt.
Beckham hefur einnig náð sögulegum árangri í sinni íþrótt. Enginn útherji í sögu NFL-deildarinnar hefur verið jafn fljótur að ná 3500 jördum á ferlinum en þeim áfanga náði hann á mánudagskvöldið - hans 36 leik á ferlinum.
.@OBJ_3 is wide open?!?
Easy @Giants TOUCHDOWN.#CINvsNYGhttps://t.co/A8rFJER9tj
— NFL (@NFL) November 15, 2016
„Ég set há viðmið fyrir sjálfan mig. Ég fékk líka innblástur um helgina þegar ég fór að sjá McGregor berjast. Það er maður sem hefur mjög sterkar skoðanir og stendur ávallt við yfirlýsingar sínar. Það veitti mér innblástur að sjá hann gera það sem hann gerir best,“ sagði Beckham.
Beckham yngri hefur einnig leitað innblásturs hjá öðrum íþróttamönnum og nefnir í því samhengi að hann hafi fylgst mjög vel með LeBron James, leikmanni Cleveland Cavaliers, í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í vor og farið á leiki á Opna bandaríska meistaramótinu í tennis.
"Id like to take this chance to apologize...to absolutely nobody" #LethalWeapon @thenotoriousmma
A photo posted by Odell Beckham Jr (@obj) on Nov 12, 2016 at 11:35pm PST