Grét er Rose kom í réttarsalinn Henry Birgir Gunnarsson skrifar 7. október 2016 14:45 Rose er nýgenginn í raðir NY Knicks. vísir/getty
Konan sem sakar NBA-stjörnuna Derrick Rose og tvo aðra menn um nauðgun bar vitni fyrir dómstólum í Los Angeles í gær. Er Rose gekk inn í réttarsalinn brást konan við með því að fara að gráta. Hún grét reyndar mikið er hún rifjaði upp þetta örlagaríka kvöld. Lögfræðingi Rose fannst komið nóg af tárum og bað dómarann um að skipa henni að hætta að gráta. Dómarinn svaraði því til að hann myndi ekki skipa henni að gráta frekar en að hann myndi skipa henni að hætta að anda. Í vitnisburði konunnar kom fram að hún hefði farið með Rose og vinum hans í villu sem Rose leigði í Beverly Hills. Hún hefði verið búin að drekka áður en hún kom þangað og að drykkjan hefði haldið áfram er þangað var komið. Henni leið eins og einhverju lyfi hefði verið laumað í glasið hennar. Hún man því lítið eftir kvöldinu í villu Rose. Er hún kom í íbúð sína síðar um kvöldið þá ældi hún áður en það leið yfir hana. Í kærunni kemur fram að mennirnir þrír hafi þá komið til hennar og nauðgað henni. Rose og félagar halda því fram að kynmökin hafi verið samþykkt og hún hafi boðið þeim heim til sín. Þeir hafa lagt sms-skilaboð og fleira til máli sínu til stuðnings. Í málinu stendur orð gegn orði þar sem hún var aldrei skoðuð eftir hina meinta nauðgun og kærði ekki fyrr en tveim árum síðar.
NBA Mest lesið Sveindís hrósaði stjörnu Sviss: „Trylltist allt þegar hún kom inn á“ Fótbolti Segir Glódísi algjöra hetju: „Sá bara hversu illa henni leið“ Fótbolti Uppselt á leik Íslands á EM í kvöld Fótbolti Hroðaleg meiðsli Musiala setja dökkan blett á HM Fótbolti „Hann elskar íslenska stuðningsmenn“ Fótbolti Kláruðu óuppgert Evrópueinvígi 65 árum síðar Fótbolti Ekki í „ljótustu“ treyjunum í kvöld Fótbolti Þungt högg fyrir Hildi: Styðjum hana og hún verður klár í leik þrjú Fótbolti Real Madrid afgreiddi Dortmund að mestu í fyrri hálfleik Fótbolti Dagskráin í dag: Fótbolti, formúla og fleira Sport Fleiri fréttir Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Sjá meira