Skoðun

Nú skal mismuna eftir aldri

Pétur Sigurðsson og skrifa
Ég er ýmsu vanur frá pólitíkusum. Búandi í Flórída þá heyri ég ruglið í Hillary Clinton og Donald Trump á ljósvakamiðlum mörgum sinnum á dag. En að íslenskur ráðherra skyldi slá þeim við í ruglinu átti ég ekki von á. Fréttin á heimasíðu Ríkis­útvarpsins þann 7. júlí, þar sem haft er eftir Sigurði Inga Jóhannssyni forsætisráðherra, að ríkisstjórnin sé að skoða þann möguleika að banna lán til fólks, ef það getur ekki greitt lánið upp áður en það er komið á ellilífeyrisaldur. Hér í Bandaríkjunum myndi þetta flokkast sem mismunun vegna aldurs.

Að mismuna einhverjum vegna aldurs, sama hvort það er í atvinnu, vegna fjármála eða annars er alríkisglæpur í Bandaríkjunum. Það að Sigurður Ingi skuli taka þannig til orða að kalla þetta „spennandi“ verkefni finnst mér alveg ótrúlegt og myndi flokkast hér sem tilraun til pólitísks sjálfsmorðs.

Hér í Bandaríkjunum ræður greiðslugeta fólks því hvort það fær lán eða ekki. Aldur, kyn, litarháttur, uppruni, trú, hjúskaparstaða eða hvort tekjurnar koma frá hinu opinbera má ekki ráða því hvort þú ert lánshæfur eða ekki. Það eru tvenn alríkislög sem fjalla um þessa þætti, annað er lagaflokkur sem fjallar um lánsmöguleika fólks (Equal Credit Opportunity Act) og hinn lagaflokkurinn er hluti af húsnæðislöggjöfinni hér (Fair Housing Act). Báðir þessir lagaflokkar voru settir til þess að koma í veg fyrir mismunun eins og ríkisstjórn Sigurðar Inga Jóhannssonar virðist ætla að leggja fyrir Alþingi.

Ég hélt að svona forræðishyggjustjórnarhættir væru fyrir löngu aflagðir og hefðu að mestu leyti horfið á svipuðum tíma og Berlínarmúrinn féll. Hafi ríkisstjórnin áhyggjur af því að fólk geti ekki séð fjárhag sínum borgið, því býður hún þá fólki ekki upp á námskeið í fjármálalæsi, námskeið eða kynningar á nauðsynlegu lágmarksviðhaldi húsa og svo framvegis? Það er ekki hlutverk ríkisstjórna að ráðskast með eða skipuleggja fjárhag heimilanna.

Ég er að velta því fyrir mér hvað er hérna um að vera. Er íslenska þjóðin orðin svona ósjálfstæð, að ríkisstjórnin þurfi að ákveða fyrir hana hvað henni er hollt eða ekki, eða er ríkisstjórnin búin að missa sambandið við þjóðina og lifir í sínum eigin sýndarveruleika?




Skoðun

Sjá meira


×