Bogut verður ekki meira með í NBA-úrslitunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. júní 2016 16:45
Ástralski miðherjinn Andrew Bogut verður ekkert meira með Golden State Warriors liðinu í úrslitaeinvíginu á móti Cleveland Cavaliers en liðin eru að berjast um NBA-meistaratitilinn í körfubolta. Andrew Bogut fór meiddur af velli í þriðja leikhlutanum í leik fimm þar sem að Cleveland Cavaliers minnkaði muninn í 3-2. Næsti leikur liðanna er í Cleveland á morgun þar sem Golden State liðið fær annað möguleika á því að tryggja sér titilinn. Andrew Bogut lenti illa í leiknum og tognaði á hné þegar J.R. Smith hljóp á hann. Bogut verður frá í sex til átta vikur en að þeim tíma liðnum verða NBA-úrslitin löngu búin. ESPN segir frá. Myndatakan á hnénu sýndi að Andrew Bogut þarf ekki að fara í aðgerð vegna meiðslanna. Andrew Bogut er með 3,2 stig, 3,90 fráköst og 2,0 varin skot að meðaltali á 12,0 mínútum í úrslitaeinvíginu. Hann tók ekki skot á körfuna í síðustu tveimur leikjum. Bogut hefur verið að byrja leikina en ekki spila mikið. Golden State Warriors hefur tapað þeim 60 mínútum sem hann hefur spilað í einvíginu með 25 stigum. Besti leikur hans í úrslitakeppninni var í upp á líf eða dauða leik fimm í einvíginu á móti Oklahoma City Thunder þar sem hann var með 15 stig og 14 fráköst.Vísir/Getty
NBA Mest lesið Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Fótbolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti Ísland - Búlgaría | Tengir landsliðið saman tvo sigra? Fótbolti „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Fótbolti Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Handbolti Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Fleiri fréttir Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Sjá meira